Frétt Vísis um framlög Íslands til Úkraínu og Palestínu vakti mikil viðbrögð á Facebook. Þar tókust á sjónarmið um skyldu Íslands til að aðstoða og hvort fjármununum væri betur varið innanlands.
Vísir leitaði því til Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, Guðmundar Hálfdánarsonar sagnfræðings og Jóns Steinssonar hagfræðiprófessors við Berkeley-háskóla. Þau voru meðal annars spurð um tilgang stuðningsins, hagsmuni Íslands og hvort mannúðaraðstoð gæti komið í stað framlaga til vopnakaupa.
20,4 milljarðar frá febrúar 2022
Samkvæmt skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis nam stuðningur Íslands við Úkraínu 20,4 milljörðum króna frá 24. febrúar 2022 til september 2026. Þar af voru 11,9 milljarðar varnartengdur stuðningur og 8,5 milljarðar mannúðar- og efnahagsstuðningur.
Á þessu ári er gert ráð fyrir 3,6 milljörðum í varnartengdan stuðning og 2,5 milljörðum í mannúðar- og efnahagsstuðning.
Hergögn, sjúkrahús og stoðtæki
Varnartengdi stuðningurinn fer einkum í fjölþjóðlega sjóði sem kaupa hergögn og birgðir. Ísland leggur einnig fé í PURL, samstarfsverkefni Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna um kaup á bandarískum varnarbúnaði.
Undir varnartengdan stuðning falla líka kaup á færanlegu sjúkrahúsi, þjálfun bráðaliða og sprengjuleit og -eyðing. Ísland leiðir samstarf um sprengjuleit og -eyðingu með Litáen.
Mannúðar- og efnahagsstuðningurinn fer að mestu í gegnum Alþjóðabankann og stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Þar er meðal annars stutt við menntun, orkuinnviði og kvennasamtök.
Einnig er samstarf við Emblu Medical og Future for Ukraine um stoðtæki og tengda þjónustu og við Römpum upp um aðgengisrampa í Lviv.
Forseti stendur við andstöðu sína við vopnakaup
Halla Tómasdóttir lýsti andstöðu við að Ísland fjármagnaði vopnakaup í aðdraganda forsetakosninganna 2024. Í skriflegu svari embættis forseta við fyrirspurn Vísis kemur fram að sú afstaða sé óbreytt.
„Forseti hefur áður lýst þeirri persónulegu afstöðu sinni að Ísland, sem herlaus þjóð, eigi ekki að fjármagna vopnakaup heldur leggja áherslu á stuðning sem byggir á styrkleikum okkar, þekkingu og reynslu. Sú afstaða hefur ekki breyst.“
Hún telur Ísland geta lagt mikið af mörkum með mannúðaraðstoð, menntun, endurhæfingu, stuðningi við flóttafólk og enduruppbyggingu. Sérstaklega þurfi að huga að börnum og ungu fólki sem hafi búið við ótta, missi og óvissu.
Í svarinu er jafnframt lögð áhersla á fullveldi Úkraínu og sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar.
„Úkraínska þjóðin á rétt á að verja land sitt og ráða eigin framtíð.“
Forseti tekur fram að ákvarðanir um einstök framlög, þar á meðal hernaðarstuðning, séu á ábyrgð ríkisstjórnar og Alþingis. Hún virði þá verkaskiptingu.
Hagsmunir herlausrar þjóðar
Guðmundur Hálfdánarson telur stöðu Íslands sem fámennrar og herlausrar þjóðar einmitt ástæðu til að styðja varnir Úkraínu. Mikilvægt sé að stórveldi komist ekki upp með að ráðast á fullvalda ríki og leggja þau undir sig.
Takist Rússum að ná markmiðum sínum í Úkraínu geti það freistað þeirra til að ráðast á fleiri nágrannaríki. Slík þróun hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir Íslendinga.
Hernaðaraðstoð við Úkraínu geti því þjónað hagsmunum Íslands með því að draga úr hættu á frekari árásum, þar á meðal á ríki Atlantshafsbandalagsins.
Ísland byggi einnig upp velvild með því að hjálpa þjóð í vanda, sem geti skipt máli ef landið þurfi sjálft á aðstoð að halda.
Þótt íslenska framlagið ráði ekki úrslitum eitt og sér telur hann það ekki næga ástæðu til að halda að sér höndum.
„Framlag okkar hvar sem er verður aldrei stórt þegar það er borið saman við framlag stórþjóða. Ef Íslendingar ætla að nota þá afsökun í öllum sínum alþjóðasamskiptum þá væri fljótt lokað á allar dyr.“
Telur stuðninginn Íslandi til skammar
Jón Steinsson telur Ísland þurfa að leggja mun meira af mörkum. Sex milljarðar króna séu um 0,1 prósent af landsframleiðslu.
„Framlag Íslands er smánarlega lágt. Þetta framlag, sem vitaskuld er betra en ekkert, er samt sem áður Íslandi til skammar.“
Hann telur Úkraínu berjast bæði fyrir eigin sjálfstæði og öryggi Evrópu. Takist Rússum ætlunarverk sitt sé hætta á að fleiri ríki verði fyrir árásum.
Að mati Jóns hafa Úkraínumenn náð miklum árangri við að þróa hergagnaiðnað og nýjar aðferðir í vörnum og sókn. Þeir þurfi þó mun meiri stuðning til að ná sigri.
Hvers vegna ekki að verja fénu heima?
Vísir spurði Jón hvernig hann mæti rökin um að fjármununum væri betur varið í heilbrigðisþjónustu, önnur verkefni innanlands eða lækkun ríkisskulda.
„Ef ráðist væri á Ísland þyrftum við að reiða okkur á hjálp frá öðrum löndum. Ef önnur lönd segðu þá að fjármunum þeirra væri betur varið í heilbrigðisþjónustu og lækkun ríkisskulda innanlands myndi árásaraðilinn auðveldlega tortíma íslensku þjóðinni.“
Hann vísar til gullnu reglunnar um að gera öðrum það sem maður vilji að þeir geri sér.
Um áhrif útgjaldanna á íslenskt efnahagslíf segir Jón það skapa minni þenslu innanlands að verja fjármunum erlendis. Það sé þó ekki aðalatriðið í þessu máli.
Getur mannúðaraðstoð komið í stað hernaðarstuðnings?
Guðmundur telur erfitt að ná sömu markmiðum með því að verja stuðningnum eingöngu til mannúðar og uppbyggingar.
„Tæplega helmingur aðstoðar Íslands við Úkraínu fram að þessu hefur verið til mannúðar- og efnahagsaðstoðar en erfitt að sjá hvernig styðja á við uppbyggingu í landi sem býr við stöðugar árásir dróna og flugskeyta.“
Úkraínumenn hafi jafnframt lagt áherslu á að hernaðaraðstoð gagnist þeim best. Þörfin fyrir stuðning við mannúð og uppbyggingu verði áfram mikil þegar stríðinu ljúki.
Guðmundur segir vopnaaðstoð lengja stríðið í þeim skilningi að Úkraínumenn gætu tæpast haldið vörnum sínum lengi úti án hennar. Hann telur kröfur Rússa í samningaumleitunum hins vegar jafngilda uppgjöf Úkraínu, meðal annars vegna krafna um landsvæði sem þeim hafi ekki tekist að leggja undir sig.
Ísland sem vettvangur friðarumleitana
Halla veltir upp hvort Ísland geti í auknum mæli lagt sitt af mörkum sem vettvangur samtals og friðarumleitana. Í svari forsetaembættisins er vísað til leiðtogafundarins í Höfða fyrir fjörutíu árum og þess að samtal geti skapað forsendur fyrir friði þrátt fyrir djúpstæðan ágreining.
„Forseti Íslands er og verður talsmanneskja friðar, mannúðar og samtals. Friður er ekki sjálfgefinn og hann verður ekki tryggður með óskhyggju einni saman. Hann krefst ábyrgðar og vilja til að leita lausna, jafnvel þegar leiðin virðist torsótt.“