Svartfjallaland gæti orðið næsta landið til að ganga í Evrópusambandið.
Norska ríkisútvarpið segir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins meti það raunhæft að aðildarviðræðum við Svartfellinga ljúki fyrir árslok. Ef það næst þá gæti aðildarsamningur verið undirritaður í júní á næsta ári og landið fengi þá inngöngu frá og með 1. janúar 2028.
Um 600 þúsund íbúar búa í Svartfjallalandi. Króatar fengu inngöngu í Evrópusambandið 1. júlí 2013 og síðan þá hefur ekkert land gengið inn í sambandið. Nokkur lönd eru í aðildarviðræðum við sambandið sem eru mislangt á veg komnar.