Sigur Demókrata í bandarísku þingkosningunum í gær er einn sá stærsti í sögu bandarísks lýðræðis.
Demókratar hafa fengið 13 prósentustigum fleiri atkvæði en Repúblikanar þegar kosningum til fulltrúadeildarinnar í öllum ríkjum er steypt saman. Það er meiri munur en í nokkrum kosningum síðan 1978 í kjölfar róstursamra tíma í bandarískum stjórnmálum.
Tvær þingdeildir
Öldungadeildin
Enn á eftir að lýsa sigurvegara í öldungadeildarkosningum í tveimur ríkjum: Alaska og Mississippi. Þessi ríki hafa jafnan verið eldrauð á kosningakortinu síðustu áratugi.
Nú er mjótt á munum í þessum ríkjum. Þegar búið er að telja meira en 95% atkvæða í Mississippi munar ríflega 1.000 atkvæðum á milli frambjóðenda stóru flokkanna. Það er um það bil 0,1% og Demókratinn Scott Colom er með forystu. Nái hann kjöri verður það í fyrsta sinn í 44 ár sem öldungadeildarþingmaður Mississippi er Demókrati.
Ekki er að vænta niðurstöðu úr öldungadeildarkosningum í Alaska fyrr en síðar. Kosningakerfið þar er snúið og talning tekur langan tíma. Þar er frambjóðandi Demókrata með nauma 600 atkvæða forystu þegar búið er að telja 78% atkvæða.
Kosningaúrslitin eru þegar orðin söguleg þegar litið er til hversu mörg sæti Demókratar tóku sem Repúblikanar höfðu fengið með meira en 10 prósentustiga mun í undangengnum forsetakosningum. Þau eru nú þegar orðin fimm og gætu allt eins orðið sjö ef fram fer sem horfir í ríkjunum tveimur sem eiga eftir að lýsa sigurvegara.
Það eru engin fordæmi fyrir því að frambjóðendum eins flokks gangi svo vel í ríkjum sem voru talin tilheyra hinum flokknum.
Þetta eru talsverð tíðindi í stjórnmálasögu Bandaríkjanna. Ríki á borð við Kansas og Texas hafa verið helstu vígi Repúblikana í áratugi. Demókratar unnu bæði þessi ríki – Texas með 12 prósentustiga mun.
Fulltrúadeildin
Demókratar áttu sigur vísan í fulltrúadeild bandaríska þingsins í þessum kosningum miðað við allar kannanir síðustu mánaða. Greinendur spáðu því að Demókratar myndu ná meirihluta í fulltrúadeildinni en ættu erfiðara verkefni fram undan í öldungadeildinni.
Sigurinn í fulltrúadeildinni er afgerandi. Demókratar hafa þegar tryggt sér 240 sæti þar sem 218 sæti duga til að hafa meirihluta. Þeir hafa bætt 24 þingmönnum við sig í kosningunum, þar af fjórum í kjördæmum þar sem landamerki voru endurskilgreind af Repúblikönum í aðdraganda kosninganna.
Enn á eftir að lýsa sigurvegara í 48 kjördæmum.
Á landsvísu skópu ungir kjósendur sigurinn fyrir Demókrata. 70% þeirra kusu Demókrata en 28% Repúblikana. Það er miðað við 53% ungra kjósenda sem kusu Kamölu Harris, frambjóðanda Demókrata í forsetakosningum fyrir tveimur árum.
Meðal kjósenda af rómönskum uppruna greiddu 69% þeirra atkvæði sitt til Demókrata, miðað við 54% fyrir tveimur árum.