Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs vill hefja undirbúning að endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur til 2040 nú þegar. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi ráðsins í gær og vísað áfram til borgarráðs.
Lagt er til að sérstakur stýrihópur verði skipaður til að hafa yfirumsjón með verkinu.
„Endurskoðun mun m.a. fela í sér endurmat á framtíðarsýn og lengingu skipulagstímabils auk endurskoðunar á stefnuákvæðum fyrir valin svæði og málaflokka,“ segir í fundargerð.
Í bókun meirihlutans segir að verkefnið þurfi að vinna í þverpólitískri sátt. Sérstaklega þurfi að horfa til framtíðarþarfa í húsnæðismálum, þróunar byggðar og samgangna. Þá þurfi að horfa til þess hvernig skipulag í Reykjavík getur stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda og ábyrgri nýtingu lands.
Í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar segir að flokkurinn styðji að hefja endurskoðun aðalskipulags. Fulltrúar hans leggja þó áherslu á að hún leiði ekki „aftur til ótakmarkaðrar útþenslu byggðar“ heldur styðji við uppbyggingu Borgarlínu, Miklubrautarganga, Sæbrautarstokks og fjölbreytt húsnæði.