Í byrjun vikunnar var greint frá því að Samkaup hefðu keypt Fjarðarkaup, sem hafa verið í eigu sömu fjölskyldu í 53 ár. Eigendur eru fjögur systkini og hefur Gísli Sigurbergsson, sá yngsti þeirra, stýrt versluninni um árabil. Hann segir að systkinin hafi farið að huga að framtíð verslunarinnar með hækkandi aldri.
„Nú þegar aldurinn er að færast yfir þá fórum við systkinin að velta fyrir okkur hvað við hver framtíð Fjarðarkaupa ætti að vera, við veltum upp alls konar möguleikum og þetta var niðurstaðan að selja þetta í heilu lagi. Ég held við höfum fengið gott verð fyrir,“ segir Gísli aðspurður.
Það er greinilegt að gleði og tregi takast á hjá Gísla, enda hefur hann starfað í versluninni nánast allan sinn starfsferil.
„Mér líður alls konar. Þannig að þegar fólk er að óska mér til hamingju koma upp blendnar tilfinningar. Auðvitað er þetta einhver hamingja en þetta er líka alls konar. Það er allur tilfinningaskalinn í gangi. Mesta sjokkið kemur þegar við afhendum lyklana. Nýir eigendur taka mögulega við versluninni í lok nóvember ef allt gengur vel hjá Samkeppniseftirlitinu. Í síðasta lagi í janúar á næsta ári ,“ segir hann.
Gagnrýnd fyrir að vera of ódýr
Gísli segir að einkunnarorð Fjarðarkaupa hafi verið fjölmörg í gegnum tíðina. Foreldrar hans hafi lagt ríka áherslu á nýtni, sparsemi, gott verð og fjölbreytt vöruúrval.
„Það hefur verið slagorð frá upphafi að fara fetið, sníða okkur stakk eftir vexti og eyða ekki um efni fram. Við nýtum t.d. hlutina gríðarlega vel. Við hugsum vel um allt hjá okkur sem dugar vel. Þetta er hluti af kaupfélagsstemningu að leyfa hlutunum að þróast með búðinni og ég veit að okkar kúnnum hefur líkað það,“ segir Gísli og bendir á kæla og hillur í versluninni sem eru 45 ára gömul og standa enn sína plikt.
Fjarðarkaup hafa lengi verið þekkt fyrir mikið vöruúrval. Auk hefðbundinnar matvöruverslunar eru þar meðal annars fatadeild, búsáhaldadeild, prjónadeild og heilsuvörudeild. Gísli segir að fjölskyldan hafi lagt áherslu á að viðskiptavinir geti fengið allt sem þeir þurfa á einum stað og að verðið sé sanngjarnt.
„Við höfum meira að segja fengið á okkur glósur frá keppinautum og heildsölum um að við séum of ódýr. Það er í raun ekki leyfilegt en það er hluti af þessu, því miður,“ segir Gísli.
„Saknar mest að vinna með pabba“
Gísli segir að fjölskyldan hafi ávallt lagt áherslu á góð samskipti við starfsfólk og viðskiptavini. Fréttastofa ræddi við þrjá starfsmenn, þar af tvo sem hafa starfað í versluninni í 35 ár og einn sem hefur unnið þar í átta ár. Þau sögðu öll að mikil starfsánægja og góðir yfirmenn væru lykillinn að langri starfsævi í versluninni.
„Það er bara svo gott að vinna hér,“ sagði Haraldur Haraldsson, ellilífeyrisþegi sem hefur starfað hjá Fjarðarkaupum í 35 ár.
Dætur Gísla eru meðal þeirra sem hafa starfað í Fjarðarkaupum frá barnsaldri. Þegar þær eru spurðar hvernig þeim líki salan er Kamilla Gísladóttir afdráttarlaus.
„Mér finnst þetta alveg hræðilegt.“
Ingibjörg, systir hennar, tekur í sama streng.
„Við erum náttúrulega búnar að vinna hérna öll sumur og öll jól og það hefur allt snúist um búðina. Ég mun sakna þess mest að vinna með pabba,“ segir Ingibjörg.
Gísli segir að verslunin hafi verið stór hluti af lífi fjölskyldunnar.
„Við þekkjum náttúrulega ekkert annað, þær eru búnar að vera hérna frá því þær voru litlar eins og ég sem byrjaði átta ára,“ segir Gísli.
Varan hefur aðdráttarafl
Fréttastofa ræddi einnig við nokkra viðskiptavini sem létu vel af Fjarðarkaupum. Ein þeirra er Guðlaug Harðardóttir, sem býr í Búðardal og gerir sér jafnan ferð í verslunina þegar hún kemur til höfuðborgarinnar.
„Yfirleitt reyni ég að koma við. Þetta er svo skemmtileg verslun, það er svo margt að. Varan hér hefur gríðarlegt aðdráttarafl,“ segir Guðlaug.
„Við höfum meira að segja fengið á okkur glósur frá keppinautum og heildsölum um að við séum of ódýr. Það er í raun ekki leyfilegt en það er hluti af þessu, því miður,“ segir Gísli.
„Mér finnst þetta alveg hræðilegt.“