Dylan heimsótti Vatíkanið áður en hann stígur á svið í kvöld í Palazzo dello Sport sem er einn af leikvöngunum sem hann spilar í á Rough and Rowdy Ways-tónleikaferðalagi sínu.
Leó og Robert eru samlandar og báðir ættaðir úr Miðvesturríkjum Bandaríkjanna, Leó er frá Chicago og Bob frá Minnesota. Fundurinn milli þeirra var hins vegar stuttur samkvæmt fréttamiðli Vatíkansins. Leó færði Dylan kaþólskt talnaband og Dylan færði páfanum eintak af sjálfsævisögu sinni, Chronicles: Volume One.
Leó hefur áður vísað í Dylan í sínum eigin verkum þegar hann vísaði í óútgefna kjarnorkuvarúðarlagið „Go Away You Bomb“ í formála bókarinnar Disarmed and Disarming: Peace Is a Gift sem kom út fyrr á árinu.
„I hate you cause yer man-made and man-owned, an' man-handled,“ var línan sem páfinn notaði í bókinni þar sem hann varar heimsbyggðina við vopnvæðingu. Lagið var samið árið 1963 í Kalda stríðinu en var aldrei tekið upp. Textinn kom fyrst fyrir sjónir almennings árið 2013 þegar hann fannst og var síðan seldur á uppboði.
Þetta er í annað skiptið sem Dylan hittir páfann, þó það hafi vissulega verið annar páfi. Árið 1997 var Dylan boðið að troða upp fyrir Jóhannes Pál annan páfa og um 300 þúsund ungmenni á kvöldmáltíðarsakramentisþingi í Bologna.
Dylan tók þá fjögur lög, þar á meðal „Knockin' on Heaven's Door“ og klifraði síðan upp sviðið á miðjum tónleikum til að heilsa Jóhannesi og spjalla við hann. Þáverandi páfinn ávarpaði síðan áhorfendur og vísaði í „Blowin' in the Wind“ í ræðu sinni.