„Við vildum skapa stað þar sem konur geta komið saman, styrkt líkamann, hugað að andlegri vellíðan og gefið sér tíma fyrir sig sjálfar. Okkur fannst mikilvægt að umhverfið væri hlýlegt og fallegt og að upplifunin skipti ekki síður máli en æfingin sjálf,“ segir Anna Eiríks.
Strong studio opnaði í haust og býður upp á fjölbreytta þjálfun í innrauðum hita. Þar er m.a. boðið upp á styrktarþjálfun, Barre, Pilates, mjúkt flæði og bandvefslosun. Því er svigrúm fyrir bæði kröftugar æfingar og rólegri tíma, eftir óskum og þörfum hverrar konu.
„Strong studio er fyrir konur á öllum aldri og á öllum getustigum. Það sem okkur finnst sérstaklega mikilvægt er að þær finni að þær eigi heima hjá okkur, hvort sem þær eru vanar að æfa eða eru að stíga sín fyrstu skref í hreyfingu,“ segir Karitas María.
Fjárfesting í heilsu til framtíðar
Að þeirra sögn er eitt meginmarkmiðið að hvetja konur til að líta á hreyfingu í víðara samhengi. Styrkur og líkamleg geta hafi gildi í daglegu lífi og mikilvægt sé að umræðan um þjálfun endurspegli það. Áherslan sé á venjur sem styðji við heilsu og vellíðan til lengri tíma.
„Við þurfum að breyta aðeins umræðunni um hreyfingu. Hún snýst ekki bara um útlit eða þyngdartap heldur fyrst og fremst um heilsu, styrk og lífsgæði til framtíðar. Við viljum hvetja konur til að líta á styrktarþjálfun sem fjárfestingu í eigin heilsu,“ segir Anna.
Karitas bendir á að viðhald vöðvamassa skipti konur máli í gegnum lífið, meðal annars þegar aldurinn færist yfir og þær ganga í gegnum hormónabreytingar. Þær vilji gera styrktarþjálfun að aðgengilegum og eðlilegum hluta af lífsstílnum.
„Styrktarþjálfun hjálpar okkur að viðhalda vöðvamassa, styrkja bein og bæta jafnvægi og líkamlega getu. Það er aldrei of seint að byrja og hver einasta æfing skiptir máli. Okkur finnst mikilvægt að konur sjái hvað þær geta gert fyrir sjálfar sig með reglulegri hreyfingu,“ segir hún.
Gleði, sviti og Bloom-smakk
Samfélagið í kringum stöðina er þeim einnig hugleikið. Nýlega héldu þær sérstaka Bloom Pop Up-tíma þar sem æfing og samvera voru í forgrunni. Þátttakendur fengu veglegan gjafapoka frá Bloom, tóku þátt í Strong æfingu og nutu síðan Bloom-smakks að henni lokinni.
„Samstarfið kom mjög eðlilega til þar sem við sjálfar erum mjög hrifnar af vörunum og deilum sameiginlegri sýn þegar kemur að heilsu, vellíðan og heilbrigðum lífsstíl. Við ákváðum að sameina góða hreyfingu, skemmtilega upplifun og smá dekur,“ segir Anna.
Karitas segir viðburðinn hafa endurspeglað vel það sem þær vilji byggja upp hjá Strong studio. Þar hafi konur fengið tækifæri til að hreyfa sig saman, kynnast vörunum og njóta samverunnar eftir æfinguna.
„Það var virkilega skemmtileg stemning og mikil orka í salnum. Gleði, sviti og stemning réðu ríkjum. Okkur finnst svo gaman að skapa svona viðburði þar sem konur koma saman, prófa eitthvað nýtt og njóta. Þetta er einmitt sú upplifun og það samfélag sem við viljum byggja upp.“
Næring sem styður við þjálfunina
Bloom-vörurnar tengjast að þeirra sögn áherslunni á að hreyfing, næring og endurheimt vinni saman. Prótein og kreatín séu þar meðal þeirra efna sem fólk sem stundar styrktarþjálfun hafi sýnt vaxandi áhuga á. Þær leggja þó áherslu á að byrja á grunninum og skoða daglegar matarvenjur.
„Prótein er byggingarefni líkamans og gegnir mikilvægu hlutverki í viðhaldi og uppbyggingu vöðva. Við hvetjum fólk til að skoða hvort það fái nægilegt prótein úr hefðbundinni fæðu og huga að því að dreifa því yfir máltíðir dagsins,“ segir Anna.
Hún segir Bloom-próteinið jafnframt vera bragðgóðan og einfaldan kost þegar fólk vill bæta próteini við yfir daginn. Það megi til dæmis hrista saman við vatn eða hræra út í hreina gríska jógúrt.
Karitas segir einnig ástæðu til að skoða kreatín í tengslum við styrktarþjálfun. Um það séu þó enn ákveðnar ranghugmyndir, líkt og um prótein.
„Kreatín er eitt best rannsakaðra fæðubótarefna í tengslum við styrktarþjálfun. Það getur hjálpað til við að bæta styrk og afkastagetu við ákafar æfingar og stutt við uppbyggingu vöðvamassa. Það er ekki bara fyrir þá sem vilja byggja mikla vöðva heldur getur það verið gagnlegt fólki sem vill viðhalda styrk og líkamlegri getu,“ segir hún.
Þær vilja að þessi umræða sé hluti af því að gera konum auðveldara að hugsa vel um sig. Næring sé einn þáttur í heildarmyndinni, rétt eins og æfingarnar sjálfar og tíminn sem gefinn er til hvíldar og endurheimtar.
Góðar venjur sem endast
Þær segjast enn rekast á þá hugmynd að prótein og kreatín séu fyrst og fremst ætluð körlum sem stundi miklar lyftingar. Því vilji þær beina umræðunni að þörfum kvenna og hvetja þær til að kynna sér næringu sem styðji við eigin markmið.
„Konur þurfa líka á próteini og góðri næringu að halda. Okkur finnst skemmtilegt að sjá vörumerki eins og Bloom, sem kona stofnaði með konur í huga. Þar er lögð áhersla á góðar vörur, fallegar umbúðir og gott bragð,“ segir Anna.
Að lokum undirstrikar Karitas að engin ein vara komi í stað þeirra þátta sem myndi grunninn að góðri heilsu. Samstarfið við Bloom falli að þeirri heildrænu nálgun sem þær leggi upp með.
„Fæðubótarefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði, nægan svefn og reglulega hreyfingu. Við erum ekki að leita að skyndilausn heldur viljum við hvetja konur til að byggja upp heilbrigðar venjur sem hægt er að viðhalda til lengri tíma.“
Hægt er að fylgja Strong studio eftir á Instagram.