Bandaríkjamaðurinn Jeffrey Weisheit, 50 ára, var tekinn af lífi í Indiana-ríki snemma í morgun. Weisheit var dæmdur til dauða fyrir að hafa myrt tvö ung börn þáverandi kærustu sinnar árið 2010.Weisheit kveikti í húsi þar sem börnin voru stödd og skildi þau eftir inni í logandi húsinu. Krufning leiddi síðar í ljós að þau voru enn á lífi þegar eldurinn kviknaði.Weisheit var tekinn af lífi með banvænni sprautu í ríkisfangelsinu í Michigan City. Hann var úrskurðaður látinn klukkan 00:45 að staðartíma og kaus að tjá sig ekki áður en aftakan hófst.
Reiddist fimm ára dreng og framdi hryllilegan glæp – Tekinn af lífi í morgun