Fjallað er um málið í vakt á vef breska ríkisútvarpsins en þar kemur fram að meðal þeirra sem hafa orðið fyrir áhrifum sé Airbus A320-flugvél Aer Lingus sem fór frá Dublin áleiðis til Rómar. Þar var sent úr neyðarboð, og vélinni í kjölfarið snúið við og lent á Evreux-herflugvellinum í Norður-Frakklandi.
Samskonar hótanir bárust á þriðjudag. Þá þurfti að lenda sjö farþegaflugvélum í Evrópu vegna sprengjuhótana. Þá barst einnig hótun gegn skemmtiferðaskipi en engar sprengjur fundurst. þá var greint frá því að yfirvöld í nokkrum ríkjum Evrópu ætluðu að vinna saman að rannsókn málsins.
Herþotur fylgdu
Í dag hefur finnska flugfélagið Finnair greint frá því að sprengjuhótun hefði borist vegna einnar af vélum þess sem var á leið frá Helsinki til Rómar á fimmtudag. Herþotur fylgdu vélinni og hún lenti samkvæmt áætlun.
Í frétt BBC segir að tékkneska lögreglan hafi greint frá hótunum og að hún undirbúi sig fyrir lendingu fjögurra véla eftir að „hafa fengið hótun um að heimatilbúinni sprengju hefði verið komið fyrir“.
„Við metum alvarleika hótana lítinn,“ skrifar tékkneska lögreglan á X og segir að „sprengjuleit verði gerð í öllum flugvélunum“ eftir lendingu.
Búkarest og Helsinki
Þá kemur einnig fram í fréttinni að um 200 farþegar hafi verið fluttir úr flugvél Wizz Air á leið frá Mílanó til Búkarest á fimmtudag í kjölfar sprengjuhótunar.Embættismenn flugvallarins sögðu að farþegar hefðu verið fluttir frá borði og neyðarferlar virkjaðir í samstarfi við ríkisstofnanir.
„Farþegar hafa farið frá borði. Flugvöllurinn hefur gripið til þeirra ráðstafana sem krafist er í slíkum tilvikum, í samstarfi við ríkisstofnanir.
„Verið er að koma á fót viðbragðsteymi og sérstökum verklagsreglum fyrir slíkar aðstæður er fylgt,“ sögðu fulltrúar flugvallarins við BBC.
Sérhæft sprengjueyðingarteymi frá rúmensku leyniþjónustunni (SRI) skoðar nú flugvélina.
Þá þurfti að gera öryggisleit í flugvél Finnair frá Helsinki sem lenti heilu og höldnu á Fiumicino-flugvelli í Róm um klukkan 09:30 í morgun, eftir nafnlausar tilkynningar um mögulega sprengjuhótun. Í frétt BBC segir að orrustuþotur ítalska flughersins hafi fylgt vélinni inn á flugvöllinn og sprengjueyðingaraðgerðir hafist í samræmi við hefðbundnar öryggisreglur.
Talsmaðurinn sagði að öryggisleitin hefði gengið eðlilega fyrir sig og ekki haft áhrif á starfsemi flugvallarins.
Þrjár hótanir í Búlgaríu
Í Búlgaríu hefur samgönguráðuneytið staðfest að sprengjuhótanir hafi borist vegna þriggja flugvéla á leið til landsins. Tvær vélanna hafa þegar lent á Vasil Levski-flugvelli. Vélin frá Madríd lenti kl. 10:15 og vélin frá Kaupmannahöfn kom til Sófíu kl. 10:19. Engar sprengjur hafa fundist.
Þriðja vélin, sem kemur frá London, hefur ekki enn lent og er búist við að hún lendi á flugvellinum í Plovdiv. Ryanair rekur allar þrjár vélarnar.