
Íslendingar voru 44,3% þeirra 3.408 einstaklinga sem nutu fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar á síðasta ári. Aðrir styrkþegar voru af erlendu bergi brotnir og flestir þeirra frá Úkraínu, eða 790 talsins.
Þetta kemur fram í svari velferðarsviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Helga Áss Grétarssonar, varaborgarfulltrúa Miðflokksins sem á sæti í velferðarráði. Helgi Áss greindi frá helstu niðurstöðunum í samtali við Morgunblaðið.
Úkraína, Palestína og Venesúela
Íslendingar voru fjölmennasti einstaki hópurinn, 1.509 talsins. Á eftir 790 Úkraínumönnum komu 206 Palestínumenn, 187 frá Venesúela og 134 Pólverjar.
Helgi Áss segir það vekja athygli að Palestínumenn hafi verið 6% styrkþega árið 2025 en fengið 7,5% þeirrar fjárhæðar sem veitt var. Svipaða mynd segir hann að sjá megi hjá Afgönum, Sýrlendingum og Írökum, þar sem hlutur þeirra í fjárhæðinni sé hærri en hlutur þeirra í fjölda styrkþega.
„Það er viss þróun hjá Reykjavíkurborg síðan árið 2022 sem gefur til kynna að líklegra sé að einstaklingar frá tilteknum ríkjum, á borð við Palestínu, Afganistan o.fl., fái hærri styrki en sem nemur hlutfalli þeirra af heildarfjölda styrkþega,“ segir Helgi Áss. Hann bætir við að fjárhæðirnar séu ef til vill ekki ýkja háar í heildarsamhengi en að ástæða sé til að hafa áhyggjur af þróuninni.
Útgjöldin lækkuðu milli ára
Heildarútgjöld borgarinnar vegna fjárhagsaðstoðar til einstaklinga voru 3.429 milljónir króna í fyrra, 669 milljónum minni en árið 2024. Mest fór í framfærslustyrki, 2.633 milljónir.
Ríkið endurgreiddi borginni 1.108 milljónir samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og voru nettóútgjöld Reykjavíkurborgar því 2.321 milljón króna.
Vill læra af Danmörku
„Það er mikilvægt að tölfræðilegum gögnum um velferðarkerfi hins opinbera sé safnað saman með kerfisbundnum hætti, meðal annars með tilliti til ríkisfangs þeirra sem fá bætur úr þessum kerfum. Í Danmörku hefur verið betur haldið utan um þessi mál en hér á landi,“ segir Helgi Áss.
„Við verðum að geta stýrt því hvaða fólk hefur heimild til að vera hér á landi og hver er heppileg samsetning innflytjenda. Við hljótum að geta lært af reynslu nágrannaríkja okkar í því sambandi,“ segir hann.
Önnur mæling sýndi 63%
Nútíminn greindi frá því í september að erlendir ríkisborgarar væru orðnir 63,2% skráðra notenda fjárhagsaðstoðar til framfærslu í Reykjavík árið 2025, samkvæmt úrvinnslu Samtaka skattgreiðenda úr tölum velferðarsviðs í Velstat. Þær tölur ná aðeins til framfærslustyrkja og eru því ekki beint sambærilegar við svarið til Helga Áss.
Erlendir ríkisborgarar orðnir 63% notenda fjárhagsaðstoðar í Reykjavík – voru 29% árið 2019