Íslensk yfirvöld fylgjast með sprengjuhótunum gegn farþegavélum - minnst 18 vélum hótað

Íslensk yfirvöld fylgjast með sprengjuhótunum gegn farþegavélum - minnst 18 vélum hótað

Íslensk yfirvöld fylgjast með sprengjuhótunum gegn farþegavélum - minnst 18 vélum hótað

Viðbúnaður var á flugvellinum í Sófíu, höfuðborg Búlgaríu, þegar vél RyanAir frá London lenti en hún er ein þeirra sem var hótað með sprengju. Vélin sést lenda á myndskeiðinu hér að ofan. Slökkvilið beið við öllu búið en viðbúnaðurinn bendir þó ekki til þess að menn hafi haft áhyggjur af bráðri hættu vegna þessa.

Engar staðfestar upplýsingar hafa komið um hvaðan þessar hótanir hafa verið að berast. Ítalskir fjölmiðlar hafa þó greint frá því hvernig hótunin sem send var á flugvöllinn í Róm var saman sett.

Hún var send í nafnlausum tölvupósti sem var skrifaður á ítölsku. Efnislína póstsins var: „Viðvörun um hættu.“ Pósturinn var sagður skrifaður fyrir hönd „Baráttumanna fyrir ríki karlmannsins“. Skotmarkið væri femínistastjórnvöld og tilgangurinn væri að setja mark sitt á söguna. Þar var því hótað að lita himininn rauðan með sprengingum. Ekkert er vitað um þennan hóp ef hann er þá á annað borð til.

Flugvallaryfirvöld segja í yfirlýsingu að verið sé að rannsaka uppruna og kringumstæður hótunarinnar í samræmi við öryggisvenjur.

Hvorki Isavia né Icelandair hafa borist sprengjuhótanir í dag. Þetta staðfesta Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, og Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, við fréttastofu.

Samkvæmt upplýsingum á vef Keflavíkurflugvallar eru komur og brottfarir á áætlun.

„Við höfum heyrt af truflunum á nokkrum flugferðum víðs vegar um Evrópu,“ segir Heidi Alexander, samgönguráðherra Bretlands.

„Við erum með eitt öflugasta flugöryggiskerfi heims og höfum komið upp ferlum til að eiga við göbb og illgjarnar hótanir, og þannig hafa þessar hótanir verið,“ bætti hún við. Hún sagði að flugdeild lögreglunnar í Lundúnum myndi ráðfæra sig við viðeigandi yfirvöld. Hótanirnar séu teknar alvarlega.

Flugvöllurinn í Madrid fékk hótanir vegna þriggja farþegavéla sem voru á leiðinni þangað. Þetta staðfesti fjölmiðlaskrifstofa vallarins við Guardian. Þær voru skoðaðar við lendingu og engin sprengja fannst. Með þessari viðbót eru flugferðirnar sem sprengjuhótanirnar hafa beinst að orðnar 18 talsins.

Utanríkisráðuneytið hefur ekki gefið út sérstök tilmæli vegna sprengjuhótana sem flugfélög í Evrópu hafa fengið undanfarna daga en ráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála. Ráðuneytið á í virkum samskiptum við helstu samstarfsríki vegna atvikanna.

Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins til fréttastofu.

Svar ráðuneytisins í heild sinni.

„Utanríkisráðuneytið fylgist grannt með þróun mála og á í virkum samskiptum við helstu samstarfsríki Íslands vegna umræddra atvika, en hefur ekki gefið út sérstök tilmæli hvað þau varðar. Þá hafa samstarfsríki Íslands sömuleiðis ekki brugðist sérstaklega við umræddum tilvikum með slíkum hætti.“

Apostolos Tzitzikostas, samgöngumálastjóri Evrópusambandsins, segir enn of snemmt að skera úr um það hvort hótanirnar tengist.

Evrópusambandið fylgist náið með þróun mála og hefur verið í sambandi við þau lönd sem hafa orðið fyrir áhrifum.

„Það er of snemmt að draga ályktanir um það hvort atvikin tengist,“ segir hann.

Sérfræðingar í flugsamgöngum sem Guardian hefur rætt við segja hins vegar að hótanirnar virðist vera samstilltar.

Embætti ríkislögreglustjóra fylgist með atburðarásinni úti í heimi. Þetta segir Helena Rós Sturludóttir samskiptastjóri hjá embættinu.

Að öðru leyti tjáir ríkislögreglustjóri sig ekki frekar um málið að svo stöddu.

Eliran Almog, sérfræðingur í netöryggi sem fréttamiðillinn Sky News hefur rætt við, segir að fjöldi innihaldslausra sprengjuhótana í þessari viku gæti verið til þess fallinn að kanna viðbrögð.

Ásetningurinn að baki ítrekuðum hótunum gæti bæði verið að trufla samgöngur og sjá hvernig flugfélög, flugvellir og stjórnvöld bregðast við.

Hann bendir á að truflanir hafi verið á ólíkri nauðsynlegri starfsemi í vikunni. Þetta sóar bæði fé og getur dregið úr trausti almennings.

Flugvél Aer Lingus var á leið frá Dublin til Rómar þegar henni var snúið við yfir Frakklandi. Hún flaug í tæpa tvo tíma áður en sprengjuhótun barst. Flugmaður hringsólaði áður en hann lenti á herstöð í Evreux. Í byrjun myndbands má sjá flugvél Aer Lingus og leiðina sem hún flaug áður en hún lenti. Myndbandið er hljóðlaust.

Michele Robson, fyrrverandi flugumferðarstjóri, segir í viðtali við Sky News að magn hótana sem borist hafa sé óvenjulegt.

„Á öllum mínum starfsferli hef ég aldrei séð neitt þessu líkt.“

Hún segist muna eftir einni sprengjuhótun sem hafi borist meðan flugvélin var enn á flugi. „En ég hef aldrei séð þennan fjölda hótana á svo skömmum tíma.“

Hún segir þá staðreynd að nokkrar flugvélar hafi verið kyrrsettar vegna hótananna benda til þess að þær séu trúverðuglegar.

Hefur röskun á flugi vegna sprengjuhótana haft áhrif á þig eða ferðalagið þitt?

Við viljum heyra frá þér. Þú mátt gjarnan hafa samband við okkur í gegnum netfangið frettir@ruv.is. Þar getur þú einnig sent okkur myndefni.

Lögregla í Tékklandi segir engin sprengiefni hafa fundist um borð í fjórum flugvélum sem fengu sprengjuhótanir áður en þær lentu í Prag.

Málið er komið á borð deildar innan tékknesku lögreglunnar sem sinnir málum tengdum hryðjuverkum, öfgahyggju og netglæpum.

Flugher Búlgaríu sendi herflugvélar til að fylgja þremur vélum á vegum Ryanair, sem voru á leið til Sofiu frá Kaupmannahöfn, Madríd og Lundúnum, til lendingar. Ein vélin lenti á flugvellinum í Plodvdiv-flugvelli í Búlgaríu og hinar tvær á Vasil Levski-flugvellinum í Sofiu.

Ekkert grunsamlegt fannst um borð í flugvélunum, að sögn samgönguráðuneytis Ungverjalands. Leitað var í þeim þegar þær lentu.

Sprengjuhótanir hafa borist og haft áhrif á að minnsta kosti 15 flugferðir:

  • Vél Aer Lingus frá Dublin á Írlandi til Rómar á Ítalíu, snúið til Evreuz í Frakklandi (EI-DEH)
  • Vél Ryanair frá Madríd á Spáni til Sofíu í Búlgaríu (flugnúmer: FR6410)
  • Vél Ryanair frá Kaupmannahöfn til Sofíu í Búlgaríu (flugnúmer: FR3606)
  • Vél Ryanair frá Stansted-flugvelli í Lundúnum til Sofíu í Búlgaríu, snúið til Plovdiv í Búlgaríu (flugnúmer: FR1730)
  • Vél pólska flugfélagsins LOT frá Varsjá til Brussel í Belgíu (flugnúmer: LO235)
  • Vél WizzAir frá Malpensa í Mílanó á Ítalíu til Varsjá-Okęcie í Póllandi, snúið til Vínar í Austurríki (flugnúmer: W46387)
  • Vél FinnAir frá Helsinki í Finnlandi til Fiumicino í Róm á Ítalíu (flugnúmer: AY1761)
  • Vél FinnAir frá Helsinki í Finnlandi til Vínar í Austurríki (flugnúmer: AY1471)
  • Fjórar flugvélar á leið til Prag í Tékklandi sem ekki er búið að bera kennsl á.
  • Vél WizzAir frá Malpensa í Mílanó á Ítalíu til Búkarest í Ungverjalandi (flugnúmer: W43064)
  • Vél Aegean Airlines frá Þessalóniku í Grikklandi til Malpensa í Mílanó á Ítalíu (flugnúmer: A3552)
  • Vél Ryanair frá Portó í Portúgal til Malpensa í Mílanó á Ítalíu (flugnúmer: FR8953)

Hér fyrir neðan sagði að þetta væri í annað sinn í þessari viku sem svona hótanir berast en það er ekki alveg rétt. Hótanir hafa borist undanfarna daga, ekki bara á þriðjudag.

Á sunnudag barst hótun um sprengju í vél á leið frá Tel Aviv til Vínar. Henni var lent í Búlgaríu. Á mánudag var vél Wizz Air á leið frá Lundúnum til Sófíu lent í Ungverjalandi vegna sprengjuhótunar og eins og fyrr segir bárust sjö hótanir til flugfélaga á þriðjudag.

Samkvæmt upplýsingum á vef Keflavíkurflugvallar eru allar flugferðir á áætlun, bæði komur og brottfarir.

Þetta er ekki í fyrsta skipti í þessari viku sem sprengjuhótun hefur áhrif á flugferðir. Á þriðjudag hafði svipuð hótun áhrif á sjö flugferðir.

Sú hótun hafði áhrif á tvær flugvélar sem fóru frá Bretlandi, ein frá Heathrow-flugvelli og ein frá Manchester. Leitað var í vélunum og þeim beint annað en á áætlaðan áfangastað.

Öðrum flugvellinum í Varsjá í Póllandi, Modlin, var lokað eftir að flugvél sem var beint þangað lenti. Ítölsk herflugvél fylgdi flugvél Ryanair, sem kom frá Dublin á Írlandi, til Rómar eftir hótun.

Hótunin á þriðjudag hafði áhrif á flugferðir frá Bretlandi, Írlandi, Danmörku, Portúgal og Ítalíu. Vélunum var lent í Póllandi, á Spáni, Ítalíu og í Búlgaríu. Fjórar flugferðir voru á vegum flugfélagsins Ryanair en hinar á vegum Wizz Air, LOT og SAS.

Komiði sæl. Við hefjum þessa fréttavakt vegna frétta um sprengjuhótanir í farþegavélum í millilandaflugi í Evrópu í morgun.

Sprengjuhótanir hafa borist vegna fjölda farþegaflugvéla í millilandaflugi í dag. Vélarnar hafa verið á flugi víða í Evrópu.

Í engum tilvikanna hafa fundist sprengjur.

#fylgjast #með #sprengjuhótunum #yfirvöld #íslensk

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-11-05-islensk-yfirvold-fylgjast-med-sprengjuhotunum-gegn-farthegavelum-minnst-18-velum-hotad-491844

📰 Aðrar fréttir

More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
📅 05.11.2026 👁️ 1
More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
Det Supt Andy Furphy said he hoped other potential victims would gain "courage" and "confidence" from the guilty verdicts.
Bókargagnrýni: Tvær hliðar á merkum manni
📅 05.11.2026 👁️ 1
Bókargagnrýni: Tvær hliðar á merkum manni
Davíðstíminn – Sjálfstæð saga leiðtoga og landsJón Trausti Reynisson – Reynir TraustasonÚtgefandi er Góður punktur
Russell Brand dæmdur sekur um nauðgun
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand dæmdur sekur um nauðgun
Russell Brand, breski uppistandarinn og aktívistinn, hefur verið dæmdur fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Lengd dómsins verður uppkveðin á mánudag.Bresk...
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar
📅 05.11.2026 👁️ 1
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar Fréttin5. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Öry...
Kannaðist ekki við spíttið og sagðist hafa verið í ísbíltúr - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Kannaðist ekki við spíttið og sagðist hafa verið í ísbíltúr - Vísir
Í úrskurði Landsréttar um gæsluvarðhaldskröfu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að móttakandi sendingarinnar hafi verið ótilgreint gjaldþrot...
Lögreglan ennþá á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
📅 05.11.2026 👁️ 1
Lögreglan ennþá á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
Framkvæmdir eru ekki hafnar í lögreglustöðinni á Ísafirði þar sem mygla fannst fyrir hálfu öðru ári. Lögreglumönnum á Vestfjörðum finnst óboðlegt að v...
Borgin hafi rekið fólkið á bak við græna bók­haldið - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Borgin hafi rekið fólkið á bak við græna bók­haldið - Vísir
Þetta kemur fram í bókun Lífar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær, þar sem kolefnisspor Reykjavíkur fyrir árið 2025 var kynnt. „Nú hefur meirih...
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti
📅 05.11.2026 👁️ 1
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti Fréttin5. nóvember 2026Innlent, Skólamál, TransmálLeave a Comment Hel...
Vill sekta fyrirtæki sem auglýsa ekki á íslensku
📅 05.11.2026 👁️ 1
Vill sekta fyrirtæki sem auglýsa ekki á íslensku
Auglýsingar á Íslandi eiga að vera á íslensku, segir Snorri Másson þingmaður Miðflokksins. Hann mælti fyrir nýju frumvarpi á Alþingi fyrir nokkru um b...
Cristiano Ronaldo: Why has Portugal legend retired from international game?
📅 05.11.2026 👁️ 1
Cristiano Ronaldo: Why has Portugal legend retired from international game?
As Cristiano Ronaldo retires from international football, Guillem Balague looks at why and what is next for the Portugal legend.
Russell Brand dæmdur fyrir nauðgun - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand dæmdur fyrir nauðgun - Vísir
BBC greinir frá sakfellingunni en koma mun í ljós hver refsing Brand verður á mánudag. Brand, sem er 51 árs, var ákærður fyrir þrjár nauðganir, þrjú k...
Tenerife remains a mass-market resort where nightlife and casinos serve as pleasant additions
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tenerife remains a mass-market resort where nightlife and casinos serve as pleasant additions
The largest of the Canary Islands welcomes millions of tourists each year, drawn by its extensive sandy beaches, volcanic landscapes, and mild climate...
NHS miðar kynjaskipta leguaðstöðu við líffræðilegt kyn
📅 05.11.2026 👁️ 1
NHS miðar kynjaskipta leguaðstöðu við líffræðilegt kyn
NHS miðar kynjaskipta leguaðstöðu við líffræðilegt kyn Fréttin5. nóvember 2026Erlent, Heilbrigðismál, Kynjamál, TransmálLeave a Comment Nýjar leiðbein...
Systir Davíðs fagnaði með feðgunum
📅 05.11.2026 👁️ 2
Systir Davíðs fagnaði með feðgunum
Davíðstíminn, Sjálfstæð saga leiðtoga og lands, eftir Jón Trausta Reynisson og Reyni Traustason, var kynnt með pompi og prakt í verslun Pennans - Eymu...
Sveinn Andri ver Palestínumann sem ákærður er fyrir manndrápstilraun í Reykjanesbæ
📅 05.11.2026 👁️ 2
Sveinn Andri ver Palestínumann sem ákærður er fyrir manndrápstilraun í Reykjanesbæ
Aðalmeðferð í máli 32 ára Palestínumanns, sem ákærður er fyrir að hafa reynt að drepa 19 ára mann í búsetuúrræði fyrir hælisleitendur í Reykjanesbæ í ...
Meirihlutinn í Reykjanesbæ verulega ósáttur við tíðar fyrirspurnir minnihlutans - Segja um faraldur að ræða sem leggist á herðar starfsfólks
📅 05.11.2026 👁️ 1
Meirihlutinn í Reykjanesbæ verulega ósáttur við tíðar fyrirspurnir minnihlutans - Segja um faraldur að ræða sem leggist á herðar starfsfólks
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í bæjarstjórn Reykjanesbæjar gagnrýnir harðlega minnihluta Framsóknar og Samfylkingar fyrir tíðar fyrirspurn...
Lanzarote Cabildo moves to halt buggy and quad tours over damage to the countryside
📅 05.11.2026 👁️ 2
Lanzarote Cabildo moves to halt buggy and quad tours over damage to the countryside
The Lanzarote Cabildo is preparing to temporarily halt organised buggy, quad and jeep safari excursions on rural land, following growing concern about...
Hall­dór Eld­járn og Hildur selja á Hagamelnum - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Hall­dór Eld­járn og Hildur selja á Hagamelnum - Vísir
„Fallegasti og besti Hagamelurinn okkar er kominn á sölu. Við fluttum hér inn í mjög illa farið hús árið 2020 og gerðum bókstaflega allt upp sem hægt ...
FÍA boðar atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir gegn Icelandair
📅 05.11.2026 👁️ 2
FÍA boðar atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir gegn Icelandair
Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) samþykktu á fundi í gær að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leigufl...
Teenager arrested after man stabbed in face in Gran Canaria
📅 05.11.2026 👁️ 2
Teenager arrested after man stabbed in face in Gran Canaria
A 20-year-old man was taken to hospital after being stabbed in the face during an alleged attack in South Gran Canaria in the early hours of yesterday...
Meira en helmingur þeirra sem fengu fjárhagsaðstoð í Reykjavík af erlendum uppruna
📅 05.11.2026 👁️ 2
Meira en helmingur þeirra sem fengu fjárhagsaðstoð í Reykjavík af erlendum uppruna
Ráðhús Reykjavíkur. Mynd: Helmut Seger / Wikimedia Commons (CC BY-SA 4.0) Íslendingar voru 44,3% þeirra 3.408 einstaklinga sem nutu fjárhagsaðstoðar R...
Þórunn biður Íslendinga af taílenskum uppruna afsökunar á ummælunum
📅 05.11.2026 👁️ 2
Þórunn biður Íslendinga af taílenskum uppruna afsökunar á ummælunum
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og þingmaður Samfylkingarinnar, biður Íslendinga af taílenskum uppruna afsökunar á ummælum sínum um að Rey...
Brynja varar við sameiningu leikskólana – „Eru íbúar almennt meðvitaðir um það hversu slæmar raka- og mygluskemmdirnar á Hlíð hafa verið sl. ár?
📅 05.11.2026 👁️ 2
Brynja varar við sameiningu leikskólana – „Eru íbúar almennt meðvitaðir um það hversu slæmar raka- og mygluskemmdirnar á Hlíð hafa verið sl. ár?
Móðir barns á leikskólanum Hlaðhömrum gagnrýnir harðlega ákvörðun Mosfellsbæjar um að rífa skólann og sameina hann við ungbarnaleikskólann Hlið. Vitað...
Faisal Islam: How high will interest rates go?
📅 05.11.2026 👁️ 2
Faisal Islam: How high will interest rates go?
The BBC's economics editor views one more interest rate as likely, but thinks that will be all.
Sendimaður Pútíns í Washington – friðarviðræður um Úkraínu á viðkvæmu stigi
📅 05.11.2026 👁️ 2
Sendimaður Pútíns í Washington – friðarviðræður um Úkraínu á viðkvæmu stigi
Sendimaður Pútíns í Washington – friðarviðræður um Úkraínu á viðkvæmu stigi Fréttin5. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Kirill Dmitri...
Rússland og Úkraína skiptast á loftárásum á meðan nýjar friðarviðræður eru undirbúnar
📅 05.11.2026 👁️ 2
Rússland og Úkraína skiptast á loftárásum á meðan nýjar friðarviðræður eru undirbúnar
Rússland og Úkraína skiptast á loftárásum á meðan nýjar friðarviðræður eru undirbúnar Fréttin5. nóvember 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comm...
Biðst af­sökunar á orðum sínum um Bangkok - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Biðst af­sökunar á orðum sínum um Bangkok - Vísir
Þetta kemur fram í Facebook færslu Þórunnar. Tilefnið er viðtal við Þórunni í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar ræddi hún nýtt frumvarp dómsmálaráðherr...
Football fan tried to stop Huntingdon train attack, jury hears
📅 05.11.2026 👁️ 2
Football fan tried to stop Huntingdon train attack, jury hears
Stephen Crean says his grapple with the attacker was "like Come Dancing, we were all over the place".
Allir Bónus vanilludropar innkallaðir – neytendur hvattir til að nota þá ekki
📅 05.11.2026 👁️ 1
Allir Bónus vanilludropar innkallaðir – neytendur hvattir til að nota þá ekki
Allir Bónus vanilludropar innkallaðir – neytendur hvattir til að nota þá ekki Fréttin5. nóvember 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Aðföng h...
Óverjandi hugmyndir krefjast múgsefjunar
📅 05.11.2026 👁️ 1
Óverjandi hugmyndir krefjast múgsefjunar
Óverjandi hugmyndir krefjast múgsefjunar Fréttin5. nóvember 2026Aðsend grein, Eldur Smári, InnlentLeave a Comment María Rut Kristinsdóttir, þingmaður ...
Vaxtarmörkin, flug­völlurinn og olíuhöfnin undir endur­skoðun - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Vaxtarmörkin, flug­völlurinn og olíuhöfnin undir endur­skoðun - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær tillögu Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar um að hefja undirbúning að endurskoðun aðalskipulags...
Stórsigur demókrata í Bandaríkjunum en óvissa og spenna framundan
📅 05.11.2026 👁️ 2
Stórsigur demókrata í Bandaríkjunum en óvissa og spenna framundan
Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandarík...
Stórsigur Demókrata í Bandaríkjunum en óvissa og spenna fram undan

Telur ekki of seint að hafa uppi á morðingjanum - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Telur ekki of seint að hafa uppi á morðingjanum - Vísir
Líkt og Vísir fjallaði um í gær var Ntentes sýknaður en honum var gefið að sök að hafa stungið Zingara þremur stungum í kviðinn með hnífi, skorið hann...
Tusk teflir fram hættulegum spilum í áhættuleik Kalíníngrad
📅 05.11.2026 👁️ 3
Tusk teflir fram hættulegum spilum í áhættuleik Kalíníngrad
Tusk teflir fram hættulegum spilum í áhættuleik Kalíníngrad Fréttin5. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Donald Tusk. Með stjórnarskrárkreppu sem sund...
Could this be the last Bonfire Night for noisy fireworks?
📅 05.11.2026 👁️ 2
Could this be the last Bonfire Night for noisy fireworks?
About 20 million people enjoy fireworks at home every year, but some campaigners want quieter displays.
Áhrif lokunar fangelsins á Akureyri hafa ekki verið tekin út
📅 05.11.2026 👁️ 3
Áhrif lokunar fangelsins á Akureyri hafa ekki verið tekin út
Pláss var fyrir tíu fanga í fangelsinu á Akureyri. Því var lokað að tillögu Fangelsismálastofnununar fyrir sex árum. Það þótti óhagstæð rekstrareining...
Eliza Reid og Illugi meðal höfunda sem lesa upp í beinni - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 4
Eliza Reid og Illugi meðal höfunda sem lesa upp í beinni - Vísir
Upplestrarkvöldin eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks. Notalegt og hátíðlegt andrúmsloft, léttar veitingar í boði, bóksa...
UK interest rate rise: Three ways it could affect you
📅 05.11.2026 👁️ 3
UK interest rate rise: Three ways it could affect you
Job, loans and savings are all affected by the rise in interest rates announced by the Bank of England.
Trump neitar að ætla að reka Hegseth – Heimildarmenn segja að annað sé uppi á teningnum
📅 05.11.2026 👁️ 4
Trump neitar að ætla að reka Hegseth – Heimildarmenn segja að annað sé uppi á teningnum
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður íhuga að láta Pete Hegseth varnarmálaráðherra taka pokann sinn í kjölfar afhroðs Repúblikana í þingkosningunu...
Ráðuneyti Eyjólfs og stofnanir þess hafa eytt yfir 200 milljónum í auglýsingar á síðustu fjórum árum
📅 05.11.2026 👁️ 4
Ráðuneyti Eyjólfs og stofnanir þess hafa eytt yfir 200 milljónum í auglýsingar á síðustu fjórum árum
Innviðaráðuneytið og stofnanir þess hafa síðan í september 2022 eytt yfir 200 milljónum króna í auglýsingar í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum og öðrum m...
Viðreisn og Miðflokkurinn í Kópavogi gagnrýndu aðgerðir Ingu sem fékk þá stuðning úr óvæntri átt
📅 05.11.2026 👁️ 4
Viðreisn og Miðflokkurinn í Kópavogi gagnrýndu aðgerðir Ingu sem fékk þá stuðning úr óvæntri átt
Fulltrúar Viðreisnar í menntaráði Kópavogs gagnrýna þær breytingar sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra hefur látið gera á námsmatskvarða fyri...
Reiddist fimm ára dreng og framdi hryllilegan glæp – Tekinn af lífi í morgun
📅 05.11.2026 👁️ 4
Reiddist fimm ára dreng og framdi hryllilegan glæp – Tekinn af lífi í morgun
Bandaríkjamaðurinn Jeffrey Weisheit, 50 ára, var tekinn af lífi í Indiana-ríki snemma í morgun. Weisheit var dæmdur til dauða fyrir að hafa myrt tvö u...
Býðst til að stíga til hliðar að uppfulltu einu skilyrði
📅 05.11.2026 👁️ 4
Býðst til að stíga til hliðar að uppfulltu einu skilyrði
Brynjar Karl Sigurðsson yfirþjálfari hjá körfuboltafélaginu Aþenu og einn helsti forvígismaður félagsins hefur boðist til að hætta öllum afskiptum af ...
„Fyrsti þingmaðurinn til að flytja krakkafréttir í pontu“ – Ræða Ásu Berglindar um bandarísku kosningarnar vekur hörð viðbrögð
📅 05.11.2026 👁️ 3
„Fyrsti þingmaðurinn til að flytja krakkafréttir í pontu“ – Ræða Ásu Berglindar um bandarísku kosningarnar vekur hörð viðbrögð
„Fjölbreytileikinn sigraði í Bandaríkjunum,“ sagði Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, í ræðustól Alþingis í gær...
Skilnaður og 200 milljóna gjald­þrot - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Skilnaður og 200 milljóna gjald­þrot - Vísir
Dean Norris er þekktastur fyrir að leika Hank Schrader í glæpaþáttunum Breaking Bad (2008-13) en hefur fyrir utan það leikið í rúmlega 150 kvikmyndum ...
Olíuverð hrapaði um nær níu prósent eftir kosningarnar í Bandaríkjunum – vonir um frið við Íran aukast
📅 05.11.2026 👁️ 2
Olíuverð hrapaði um nær níu prósent eftir kosningarnar í Bandaríkjunum – vonir um frið við Íran aukast
Olíuverð hrapaði um nær níu prósent eftir kosningarnar í Bandaríkjunum – vonir um frið við Íran aukast Fréttin5. nóvember 2026Erlent, Markaður, Trump,...
Trumpismi sigrar 2028
📅 05.11.2026 👁️ 3
Trumpismi sigrar 2028
Trumpismi sigrar 2028 Fréttin5. nóvember 2026Erlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Afgerandi sigur demókrata í ...
Fjár­mála­ráð­herra fagnar - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Fjár­mála­ráð­herra fagnar - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.  Varaforseti Bandaríkjanna er bersýnilega að undirbúa forsetaframboð og að reyna að ...
Frakkland logar í mótmælum – 70 þúsund lögreglumenn kallaðir út vegna fjöldaverkfalla
📅 05.11.2026 👁️ 3
Frakkland logar í mótmælum – 70 þúsund lögreglumenn kallaðir út vegna fjöldaverkfalla
Frakkland logar í mótmælum – 70 þúsund lögreglumenn kallaðir út vegna fjöldaverkfalla Fréttin5. nóvember 2026Erlent, MótmæliLeave a Comment People tak...