Óverjandi hugmyndir krefjast múgsefjunar

Eldur Smári Kristinsson skrifar:
María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, fullyrti nýverið að Miðflokkurinn ógnaði öryggi hennar, vina hennar og „tilverurétti“ transvina hennar mun meira en múslimar. Þetta er ekki bara klikkað; þetta er dæmi um þann hroka og þá skoðanakúgun sem hefur tekið yfir stóran hluta íslenskrar umræðu
Enginn í Miðflokknum hefur til að mynda verið kærður til Lögreglu vegna hótana um ofbeldi, meinta hatursorðræðu eða þvíumlíkt, heldur aldraður kennari á Akureyri og þessi óbreytti «hommatittur» sem skrifar þennan pistil hér.
Hagsmunasamtökin hennar Maríu Rutar og María Rut sjálf telja því ekki aðeins Miðflokkinn hættulegri en heittrúaðir múslimar, heldur þá hlýtur það vera augljóst að gamla kerlingin á Akureyri og homminn sem hefur reynt að gagnrýna hreyfinguna innan frá séu stórhættulegt fólk sem hreinlega þarf að koma á bak við lás og slá.
Í stað þess að taka þátt í opnu samtali um raunveruleg áhrif kynjaídeólógíu á börn – þar á meðal ógagnreyndar meðferðir eins og kynþroskabælandi lyf, hormón og aðgerðir – kýs María Rut að mála andstæðinga sem ógn við tilveru fólks.
Þetta er klassískt múgsefjunarbragð: umræðan er ekki leyfð, gagnrýni er sett í samhengi við hatursorðræðu og gagnrýnendur eru gerðir að óvinum.
Þegar fólk eins og hún og aðrir talsmenn kynjaídeólógíunnar krefjast þess að umræður fari ekki fram „fyrir opnum tjöldum“, er verið að kynda undir skoðanakúgun frekar en að verja þessar hugmyndir og bábiljur sínar með rökum.
Ég er samkynhneigður karlmaður, fullorðinn og akkeraður í raunveruleikanum.
Ég tilheyri ekki þessu sama költi og María Rut sem krefst þess að við afneitum líffræðilegri kynheigð, líffræðilegum raunveruleika eða rétti barna til að þroskast án óafturkræfra tilraunainngripa.
Ég er tilbúinn að verja mínar skoðanir opinberlega.
Hvers vegna eru María Rut, Þorbjörg Þorvalds, Ugla Stefanía, Jóhannes Þór, Bjarndís Helga, Kári Garðars og annað ofstækisfólk hinsegin költsins ekki tilbúnir til þess sama?
Það sem gerir málið enn verra er að María Rut nefnir ekki hagsmunaárekstur sinn.
Hún og eiginkona hennar, Ingileif Friðriksdóttir, stofnuðu og reka Hinseginleikann – vettvang fræðsluáróðurs sem hófst á Snapchat, varð að sjónvarpsþáttum á RÚV, hlaðvarpi og efni sem er notað í skólum. Þær gefa út barnabækur eins og Vertu þú! og Úlfur og Ylfa þar sem «fjölbreytileiki» kyntjáning og umdeildar kenningar um kyn eru settar fram fyrir börn sem um staðreyndir séu um að ræða.
Þær halda fyrirlestra í skólum undir merkjum Hinseginleikans.
Sem þingmaður sem tekur þátt í stefnumótun um menntun, jafnrétti og börn er þetta augljós hagsmunaárekstur sem á að koma fram.
Það er ekki „fræðsla“ þegar umdeildum kenningum er beinlínis innrætt í íslensk skólabörn án gagnrýninnar umræðu eða gagnsæis um hverjir standa á bak við efnið.
Íslendingar eiga rétt á opnum umræðum um þessi mál – ekki múgsefjun, hroka eða skoðanakúgun.
Ef María Rut og Viðreisn vilja ekki ræða þetta fyrir opnum tjöldum, þá er það þeirra vandamál – ekki samfélagsins.
Ég er tilbúinn.
Eru þær?
