Í úrskurði Landsréttar um gæsluvarðhaldskröfu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að móttakandi sendingarinnar hafi verið ótilgreint gjaldþrota fyrirtæki en símanúmer sem skráð var á sendinguna hafi verið óskráð.
Hitti feðga í porti
Við skoðun á fjarskiptagögnum símanúmersins hafi komið í ljós að síminn var í eigu manns sem átti helmingshlut í hinu gjaldþrota fyrirtæki. Í kjölfarið hafi lögreglan fylgst með ferðum mannsins, eftir að hafa skipt amfetamíninu út fyrir gerviefni.
Þann 8. september hafi eigandi símans hitt manninn, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald. Sá hafi síðar farið við annan mann á pósthús og sótt sendinguna með gerviefnunum. Þeir tveir hafi síðan keyrt í miðbæ Reykjavíkur og hitt eiganda símans og föður hans í porti og skilið gerviefnin eftir hjá þeim. Allir fjórir hafi verið handteknir.
Beðinn um að fara á rúntinn með ókunnugum manni
Í skýrslutöku hjá lögreglu sama dag hafi maðurinn sagst ekkert vita um málið, hann hefði farið í Hafnarfjörð með manni sem hann þekkti ekki og vissi ekki hver væri. Þeir hefðu ætlað að fá sér ís en hefðu hætt við. Þá hefði hann sagst ekki kannast við fíkniefni í sendingunni og ekki viljað svara hvort hann hefði haft pakkasendingu með sér þegar hann fór heim til eiganda símans.
Í annarri skýrslutöku hafi hann greint frá því að eigandi símans hefði beðið hann um að fara á rúntinn með manni sem hann þekkti ekki en hafi ekki vitað að verið væri að sækja pakka eða að um fíkniefni væri að ræða.
„Lögregla telur þann framburð nokkuð ótrúverðugan og ekki í samræmi við önnur gögn málsins.“
Í niðurstöðukafla úrskurðarins segir að fallist sé á það mat lögreglu að maðurinn sé undir sterkum grun um að eiga þátt í stórfelldu fíkniefnalagabroti og að þáttur hans í því broti sé veigamikill. Því skuli hann sæta gæsluvarðhaldi til 24. nóvember.