Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti

Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa – fyrirspurn Fréttinnar ósvarað
Helga Dögg Sverrisdóttir gagnrýnir viðbrögð mannauðsráðgjafa Akureyrarbæjar eftir að lögmaður hennar vakti máls á hugsanlegu einelti í hennar garð á fundi með skólastjóra Síðuskóla. Fréttin hefur sent fyrirspurn vegna málsins en svar hefur ekki borist við birtingu fréttarinnar.
Í bloggfærslu sinni lýsir Helga Dögg fundi sem nefndur var „leiðbeinandi samtal“. Samkvæmt frásögn hennar sátu fundinn, auk hennar sjálfrar, Ólöf Inga Andrésdóttir skólastjóri, Birna Eyjólfsdóttir mannauðsráðgjafi og Eva Hauksdóttir lögmaður, sem tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.
Helga Dögg segir fundinn hafa tengst opinberri tjáningu hennar um kyn og fræðslu í grunnskólum. Hún birtir í færslunni texta þar sem lögmaður hennar bendir á að þetta hafi verið í fjórða sinn sem hún væri kölluð á fund skólastjóra vegna skoðana sinna. Þar er því haldið fram að endurtekin afskipti stjórnenda af slíkri tjáningu séu farin að bera keim af einelti.
Þetta er mat sem kemur fram í þeim gögnum sem Helga Dögg birtir. Ekki liggur fyrir í þeim efnum niðurstaða rannsóknar eða úrskurður um að einelti hafi átt sér stað.
Helga Dögg beinir sérstaklega sjónum að viðbrögðum mannauðsráðgjafans. Hún segir að Birna hafi ekki rætt við hana eftir fundinn til að afla frekari upplýsinga um það sem lögmaðurinn hafði komið á framfæri. Hún spyr hvaða viðbragða megi vænta af mannauðsráðgjafa þegar vakin sé athygli á hugsanlegu einelti stjórnanda í garð starfsmanns.
Af frásögn Helgu Daggar verður þó ekki ráðið hvort málið hafi verið tekið til umfjöllunar innan bæjarins eða hvort aðrar aðgerðir hafi verið ákveðnar.
Í færslunni birtir hún einnig brot úr bréfi sem hún segir Evu hafa sent skólastjóra daginn eftir fundinn. Þar er óskað eftir stuðningi við Helgu Dögg og lagt til að skólastjóri geri ljóst að það sé ekki hlutverk skólans að takmarka tjáningarfrelsi starfsfólks. Jafnframt kemur þar fram að Helga Dögg afþakki samtal við kennsluráðgjafa og frekari leiðbeiningar um hvernig hún eigi að hugsa og haga orðum sínum.
Helga var í viðtali vegna málsins í Brotkast hjá Frosta Logasyni, klippu úr þættinum má sjá hér neðar: