Framkvæmdir eru ekki hafnar í lögreglustöðinni á Ísafirði þar sem mygla fannst fyrir hálfu öðru ári. Lögreglumönnum á Vestfjörðum finnst óboðlegt að vera eitt og hálft ár í bráðabirgðahúsnæði.
„Þetta byrjar í rauninni 2015, okkar barátta, þegar Vinnueftirlitið gerir athugasemd við loftræstingu og fleiri atriði á lörgeglustöðinni,“ segir Ingvar Jakobsson, formaður lögreglufélags Vestfjarða.
Í kjölfarið átti að koma upp loftræstingu. Nokkrum árum síðar varð vart við myglu í húsnæðinu og svo fór að í maí 2025 flutti starfsemi lögreglunnar í bráðabirgðahúsnæði hinum megin í sömu byggingu.
Ráðamenn segja málið í forgangi en framkvæmdir eru ekki hafnar
„Þar erum við ennþá,“ segir Ingvar. „Við höfum fengið þær upplýsingar frá þingmönnum og ráðuneyti að við séum í algjörum forgangi, sem skýtur svolítið skökku við eftir eitt og háft ár“ bætir hann við.
„Það er ekki búið að rífa nagla úr vegg síðan við fluttum.“ segir Ingvar. Eftir eitt og hálft ár í bráðabirgðahúsnæði er lögreglan því enn á byrjunarreit.
Vilja kanna hvort mygla sé í bráðabirgðahúsnæðinu líka
Aðstaðan þar er ekki upp á marga fiska, segir Ingvar. Þar er ekki virk loftræsting heldur og starfsfólk hefur kvartað undan einkennum í öndunarfærum og augum sem það kannast við úr gamla rýminu.
„Starfsmenn hafa viljað fá sýnatöku í þessu rými sem þau eru í núna, út af þessum einkennum sem þau kannast við,“ segir Ingvar. Frá ríkinu hafi borist ábendingar um að passa það að hafa opna glugga. Ingvar bendir á að það sé ekki ráð lengi inn í vestfirskan vetur.
„En fyrir utan það þá er bara aðstaðan algjörlega óboðleg, þó menn hafi viljað láta hana duga til skamms tíma,“ segir Ingvar. Búningsaðstaðan sé lítil og þröng og salernin sömuleiðis svo eitthvað sé nefnt.
Starfsfólk fengið sig fullsatt
Í færslu á samfélagsmiðlum sem birtist í morgun lýsir varðstjóri á Ísafirði þrengslum í vinnurými, slæmum loftgæðum og fata- og búnaðargeymslum af skornum skammti. Sturtur eru einungis í þeim hluta hússins þar sem myglan fannst. Þar er jafnframt tekið fram að Vinnueftirlitið hafi gert athugasemd við fatahengi, kaffiaðstöðu og magn koltvísýrings í innilofti í apríl 2026 en engar breytingar hafi orðið.
Kálið ekki sopið þó í ausuna sé komið
Dómsmálaráðherra kynnti nýlega löggæslustefnu og minntist við það tækifæri á að von væri á húsnæðisáætlun. „Við kannski gjöldum svolítið varhug við einhverjar áætlarnir,“ segir Ingvar.
Hann nefnir sem dæmi að í löggæsluáætlun fyrri ára hafi verið gert ráð fyrir 27 lögreglumönnum á Vestfjörðum árið 2017. „Við erum ekki nærri því núna og sjáum ekki fram á það að vera það á næstu árum,“ bætir hann við.
Margir telji einfaldara að byggja nýtt hús
Í mars kallaði stjórn Landssambands lögreglumanna eftir nauðsynlegum úrbótum í húsnæðis- og aðstöðumálum lögreglustöðvar á Ísafirði og harmaði sinnuleysi stjórnvalda.
Lögreglufélag Vestfjarða skoraði á ríkið, ráðherra og aðra ábyrgðaraðila að bregðast við í ályktun sem það sendi frá sér í lok ágúst. Þar er tekið fram að það sé „ skoðun félagsmanna að Vinnueftirlit ríkisins hafi ekki staðið við skyldur sínar til að tryggja öryggi starfsmanna.“
Ingvar segir það skoðun margra að það væri nú einfaldast að byggja nýtt húsnæði, svona til framtíðar.
Alvarlegast sé að bjóða starfsfólki upp á þessar vinnuaðstæður. „Ég í raunini þakka bara fyrir meðan hver mánuður líður meðan allir mæta hérna í vinnuna,“ segir Ingvar. „Ég myndi ekki lá neinum þó hann færi að hugsa sér til hreyfings.“