Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum í lengdum Heimsglugga á Morgunvaktinni á Rás 1. Þær voru sammála um að komið hefði á óvart hversu afgerandi sigur demókrata hefði verið.
Mikil umskipti í bandarískum stjórnmálum
Sigur demókrata var mun stærri en búist var við. Kannanir höfðu bent til þess að allar líkur væru á að flokkurinn ynni meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings en tvísýnna væri um úrslit í öldungadeildinni. Reyndin var einn stærsti sigur í sögu lýðræðisins í Bandaríkjunum. Silja Bára benti á að í kosningum síðustu ár hefðu kannanir ofmetið fylgi demókrata en að þessu sinni hefði flokknum tekist að auka kjörsókn og virkja hóp sem hafi verið talinn líklegur til að sitja heima. Víða hefðu demókratar unnið með meiri mun en spáð hafi verið, þannig hafi Jon Ossoff unnið með 18 prósentustiga mun í Georgíu en kannanir talið hann hafa tíu stiga forskot.
Tap Trumps frekar en sigur demókrata
Margir fréttaskýrendur segja að megn óánægja og reiði með ýmis stefnumál Donalds Trumps forseta hafi ráðið úrslitum frekar en hrifning af demókrataflokknum. Fjöldi hafi kosið Trump 2024 vegna loforða hans um að bæta kjör almennings, lækka verðbólgu og fara ekki í stríð. Hann hafi brotið öll þessi loforð og það hafi reitt kjósendur til reiði. Sigríður Rut sagði að Trump forseti væri orðinn afar óvinsæll „toxískur".
„Everything Trump Touches Dies"
Sigríður Rut nefndi bók eftir Rick Wilson, fyrrverandi repúblikana, þar sem hann héldi því fram að allt sem Trump kæmi að mistækist.
Það hefði gengið eftir í þessum kosningum, Trump hefði handvalið nokkra frambjóðendur eins og Ken Paxton í Texas sem væri sennilega versta val fyrr og síðar. Repúblikanar hefðu svo tapað bæði í öldungadeildarkosningunum og ríkisstjórakosningunum í Texas.
Trump hefði einnig handvalið Darlene Graham í framboð til öldungadeildarinnar í Suður-Karólínu og hún tapaði fyrir Annie Andrews. Tapi repúblikana í Suður-Karólínu megi líkja við pólitískan jarðskjálfta en Darlene Graham hefði verið hræðilega lélegur þingmaður og frambjóðandi.
Kosningabarátta Trumps bar engan árangur
Sigríður Rut nefndi einnig að ferðir Trumps á kosningafundi hefðu ekki skilað neinum árangri. Hann hefði farið til Mississippi, Texas, Kansas, Ohio, Suður-Karólínu og Iowa og alls staðar hefðu repúblikanar tapað. Eina fylkið sem Trump hafi heimsótt og repúblikanar unnið hafi verið Flórída. Silja Bára nefndi að repúblikanar hefðu þurft að verja miklu fé í kosningabaráttu í ríkjum sem þeir hefðu ráðið en án árangurs.
Margir góðir frambjóðendur
Sigríður Rut sagði að margir mjög góðir hefðu verið í hópi frambjóðenda demókrataflokksins. Silja Bára sagði að demókrötum hefði tekist að stilla saman málflutning sinn þó að þeir hefðu boðið fram fjörlbreyttan hóp. Þeim hefði tekist að tala beint inn í hjörtu og pyngju landsmanna.