Dean Norris er þekktastur fyrir að leika Hank Schrader í glæpaþáttunum Breaking Bad (2008-13) en hefur fyrir utan það leikið í rúmlega 150 kvikmyndum og sjónvarpsþáttaseríum á leiklistarferli sínum. Bridget er hins vegar lögfræðingur sem hefur sérstaklega starfað á sviði skemmtanabransans.
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá vandræðum Norris-hjónanna en þar kemur fram að Bridget hafi sótt um skilnað í Riverside-sýslu í Kaliforníu í fyrra vegna „ósættanlegs ágreinings“.
Í dómsskjölum sem TMZ hefur undir höndunum er giftingardagur hjónanna skráður sem 27. október 2001 og skilnaðardagurinn 15. janúar 2025. Hjónin eiga fimm börn saman, þar af tvö sem eru undir átján ára aldri og óskar Bridget eftir því að þau deili forsjá yfir börnunum. Þá hefur Bridget óskað eftir meðlagi frá Dean og vill að dómstóllinn meti rétt hennar á eignum sem þau keyptu á meðan á hjónabandinu stóð.
Samkvæmt skjölunum brást Dean við skilnaðinum einhverjum mánuðum síðar en skilnaðurinn hefur þó ekki enn gengið formlega í gegn.
Gjaldþrot bætir gráu ofan á svart
Ekki nóg með að vera að skilja heldur kemur einnig fram að hjónin séu að nýta sér svokallað „chapter 11 bankruptcy“ vegna veitingastaðarins Swing Inn Cafe í Temecula í Kaliforníu.
Það svipar helst til greiðslustöðvunar í skilningi laga um gjaldþrotaskipti hér á landi en slík greiðslustöðvun gerir félögum og einstaklingum kleift að komast í tímabundið skjól frá kröfuhöfum á meðan skuldarar koma fjármálum sínum í rétt horf.
Hjónin keyptu veitingastaðinn árið 2022 og í dómsskjölum kemur fram að tekjur staðarins hafi dregist saman um eina milljón Bandaríkjadala (um 120 milljónir króna) milli áranna 2024 og 2025. Fyrirtækið á um 147 þúsund dali (18 milljónir króna) í eignir á meðan skuldir þess eru 1,8 milljón dala (219 milljónir króna).
Hjónin hafa lítið tjáð sig um sitt persónulega líf í gegnum tíðina en auk þess að eiga veitingastaðinn reka þau einnig sviðslistahúsið The Norris Performing Arts Center.