Ingibjörg Elín Magnúsdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni á Vestfjörðum, vakti athygli á ástandinu í harðorðri Facebook-færslu í morgun. Þar segir hún að lögreglumenn hafi þurft að starfa í bráðabirgðahúsnæði í nítján mánuði vegna myglu á gömlu lögreglustöðinni á Ísafirði. Lítið sem ekkert hafi verið gert til úrbóta og mikil óánægja ríki meðal lögreglumanna.
Starfsemin var flutt í fyrrum húsnæði Íslandsbanka í sama húsi í apríl í fyrra eftir að mygla greindist í sýnum sem tekin voru að frumkvæði Lögreglufélags Vestfjarða.
Skipta um föt á kaffistofunni
Ingibjörg segir vinnuaðstöðuna langt frá því að vera boðlega. Þrír starfsmenn rannsóknardeildar deili litlu herbergi þar sem erfitt sé að eiga trúnaðarsamtöl. Almennir lögreglumenn hafi vinnuaðstöðu á kaffistofunni og þar fari fataskipti þeirra einnig fram.
„Vinnuaðstaðan okkar lögreglumanna er bara inni á kaffistofunni. Búningsaðstaðan er inni á kaffistofunni. Við erum að skipta um föt bara fyrir framan hvort annað. Fatarýmið okkar er bara tvær, þrjár hillur. Klósettaðstaðan er óviðunandi,“ segir Ingibjörg.
Hún segir enga virka loftræstingu vera í húsnæðinu og loftgæði afar slæm. Í Facebook-færslunni lýsir hún því að salerni séu án loftræstingar og að lögreglumenn þurfi enn að fara í sturtu í gamla, myglaða hluta húsnæðisins eftir útköll.
Þá hafi læsing á gönguhurð út úr bílageymslu verið biluð í um mánuð án þess að gert hafi verið við hana. Lögreglumenn þurfi því að reiða sig á rafknúna bílskúrshurð til að komast út þá leið.
Vinnueftirlitið hafi hótað dagsektum
Ingibjörg segir Vinnueftirlitið hafa komið á lögreglustöðina í apríl síðastliðnum og gert athugasemdir við meðal annars loftgæði, fataaðstöðu og kaffistofu. Mælingar hafi sýnt að styrkur koltvísýrings í lofti væri langt yfir viðmiðunarmörkum.
Þrátt fyrir fyrirmæli um úrbætur hafi ekkert verið lagfært.
„Ég veit að Vinnueftirlitið er búið að koma og gera athugasemdir og senda fyrirmæli og hóta dagsektum og ég veit ekki hvað og hvað. En það er ekkert að gerast neitt þar heldur,“ segir Ingibjörg.
Hún segir lögreglumenn hafa kvartað undan slappleika sem þeir tengi vinnuaðstæðunum og að sumir finni sérstaklega fyrir einkennum þegar þeir snúi aftur til vinnu eftir frí.
„Við eigum að passa upp á öryggi borgaranna en það er enginn sem passar upp á okkar öryggi á vinnustaðnum.“
Ráðherra og þingmenn upplýstir um ástandið
Ingibjörg segir Lögreglufélag Vestfjarða hafa ítrekað kallað eftir úrbótum og að ráðherra, alþingismenn kjördæmisins og fleiri hafi verið upplýstir um stöðuna. Svörin séu jafnan þau að málið sé í forgangi en ekkert gerist.
Hún segir Framkvæmdasýsluna eiga að koma að úrbótunum en málið strandi á hægagangi og afgreiðslu beiðna og samþykkta.
„Svörin sem við fáum eru að Framkvæmdasýsla ríkisins og Fasteignir ríkisins eigi að gera eitthvað en það gengur allt rosalega hægt,“ segir Ingibjörg.
Hún segist jafnframt þekkja til sambærilegra vandamála hjá öðrum ríkisstofnunum þar sem framkvæmdir og úrbætur hafi dregist.
Húsnæðisvandi lögreglunnar á Ísafirði hefur áður verið til umfjöllunar. Í mars síðastliðnum varaði stjórn Landssambands lögreglumanna við því að loka þyrfti starfsaðstöðunni ef ekki yrði ráðist í endurbætur á næstu vikum. Í ágúst kallaði Lögreglufélag Vestfjarða eftir því að núverandi húsnæði yrði yfirgefið og ný lögreglustöð byggð.
„Mælirinn er fullur“
Ingibjörg segir þolinmæði lögreglumanna löngu þrotna. Sjálf hafi hún ákveðið að stíga fram opinberlega eftir að hafa snúið aftur úr tveggja vikna vinnuferð og séð að enn hafði ekkert breyst.
„Þetta er óvirðingin gagnvart okkur og starfsfólkinu og yfirstjórninni er bara algjör,“ segir Ingibjörg.
Hún spyr hversu lengi lögreglumenn eigi að bíða eftir úrbótum og hver ætli að axla ábyrgð á ástandinu.
„Mælirinn er fullur.“