Þetta kemur fram í Facebook færslu Þórunnar. Tilefnið er viðtal við Þórunni í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar ræddi hún nýtt frumvarp dómsmálaráðherra sem ætlað er að draga úr eftirspurn eftir vændi og vernda þau sem stunda það. Þar vísaði hún til umfang vændis í Reykjavík í dag, ljóst væri að fólk sé flutt til landsins til að stunda vændi í skipulagðri brotastarfsemi. Þar var hún spurð hvort lögreglan hefði hugmynd af því hve stór hluti þess væri í skipulagðri brotastarfsemi.
„Ég held að lögreglan hafi hugmynd um það. Ég held reyndar að við þekkjum ekki alltaf umfangið en okkur er sagt að á hverjum tíma séu tugir tilboða hér í Reykjavík, á netinu og annars staðar, um vændi, fólk sé flutt til landsins til þess að stunda vændi, það sé mjög skipulagt og ég hef heyrt að lýsingin sé í rauninni orðin þannig að Reykjavík sé að verða eins og Bangkok norðursins, það sé mjög auðvelt að nálgast vændi hér og í skipulagðri glæpastarfsemi þá fer það saman, það er auðvelt að nálgast fíkniefni og það er auðvelt að nálgast vændi.“
Ekki að vísa til allra íbúa Tælands
„Vegna viðtals á Bylgjunni. Ég hef fengið ábendingar um að orð mín í viðtali á Bylgjunni í morgun um höfuðborg Tælands og vændi í Reykjavík hafi hitt fólk hér á landi illa fyrir. Ég skil að þau hafi sært Íslendinga af Tælenskum uppruna og þau sem tengjast landinu sterkum böndum. Mig langar að biðja ykkur afsökunar á þeim. Þetta var óvarlegt af mér,“ skrifar Þórunn á Facebook.
„Með þessum orðum var að sjálfsögðu ekki verið að vísa til allra íbúa Tælands, ekki frekar en umræður um ítölsku mafíuna vísa til allra Ítala. En ég skil að orðin særi og mér þykir það miður.“