Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í bæjarstjórn Reykjanesbæjar gagnrýnir harðlega minnihluta Framsóknar og Samfylkingar fyrir tíðar fyrirspurnir um ýmis mál. Segir meirihlutinn fyrirspurnirnar of margar sem bitni á starfsfólki bæjarins sem þurfi að leggja þeim mun meiri vinnu á sig til að svara þeim. Vill meirihlutinn meina að minnihlutinn eigi að skoða hvort hann geti ekki fengið þær upplýsingar sem hann vanhagi um með fljótlegri og einfaldari leiðum en að leggja fram skriflega fyrirspurn. Minnihlutinn veitti takmörkuð andsvör við þessari gagnrýni meirihlutans.
Meirihlutinn í Reykjanesbæ verulega ósáttur við tíðar fyrirspurnir minnihlutans - Segja um faraldur að ræða sem leggist á herðar starfsfólks