Þetta kemur fram í bókun Lífar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær, þar sem kolefnisspor Reykjavíkur fyrir árið 2025 var kynnt.
„Nú hefur meirihlutinn rekið það fólk sem hefur haldið utan um græna bókhaldið og Grænu skrefin og enginn hefur tekið við verkefnunum,“ segir í bókuninni.
Líf gagnrýnir að sérfræðistörfin hafi verið lögð niður og telur mikilvægi verkefnanna ekki hafa verið metið. Hún segir verkefnin geta dregið úr sóun og sparað borginni fé.
Eiga að draga úr sóun og spara fé
Grænu skrefin snúast um að gera rekstur borgarinnar umhverfisvænni. Allar stofnanir hennar eiga að taka þátt í verkefninu, sem nær til úrgangsmála, samgangna og innkaupa.
Markmiðið er meðal annars að draga úr matarsóun, sorpi, prentun og orkunotkun. Með verkefninu er líka safnað gögnum fyrir grænt bókhald borgarinnar.
Græna bókhaldið nær til reksturs borgarinnar sjálfrar, meðal annars eldsneytis- og orkunotkunar, úrgangs og losunar gróðurhúsalofttegunda. Loftslagsbókhaldið nær hins vegar til samfélagsins í Reykjavík í heild, svo sem umferðar og atvinnustarfsemi.
Meirihlutinn segir samdráttinn of hægan
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í ráðinu segja í bókun sinni að losun hafi minnkað en samdrátturinn gangi hægar en nauðsynlegt sé til að ná loftslagsmarkmiðum borgarinnar. Þeir vilja að aðgerðum verði forgangsraðað eftir því hversu miklum árangri þær skila og hvað þær kosta.
Samkvæmt samantekt loftslagsbókhaldsins dróst losun saman um sex prósent frá 2019 til 2025 samkvæmt BASIC+ uppgjöri. Þegar fleiri liðir óbeinnar losunar eru teknir með nam samdrátturinn tveimur prósentum.
Losun frá fólksbifreiðum minnkaði um 23 prósent á tímabilinu en losun vegna úrgangs jókst um 52 prósent. Tölur fyrri ára hafa verið endurreiknaðar svo hægt sé að bera þær saman við nýjustu niðurstöður.
Vísir greindi frá því 27. október að fimmtíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar yrði sagt upp og stöðugildum fækkað um tæplega 74. Umhverfis- og skipulagssvið var meðal þeirra sviða sem uppsagnirnar náðu til. Borgin sagði aðgerðirnar eiga að skila 1,3 milljarða króna árlegum sparnaði.