Davíðstíminn, Sjálfstæð saga leiðtoga og lands, eftir Jón Trausta Reynisson og Reyni Traustason, var kynnt með pompi og prakt í verslun Pennans - Eymundsson í Smáralind. Tugir gesta og velunnara fögnuðu með höfundum og útgefanda. Þeirra á meðal var Lillý Valgerður Oddsdóttir, systir Davíðs Oddssonar. Hún kemur við sögu í bókinni þar sem hún lýsti því þegar feðgarnir Oddur og Davíð komu til að bjarga henni og Runólfi, bróður þeirra, úr nauðungarvist þeirra á Silungapolli.
Systir Davíðs fagnaði með feðgunum