Líkt og Vísir fjallaði um í gær var Ntentes sýknaður en honum var gefið að sök að hafa stungið Zingara þremur stungum í kviðinn með hnífi, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan hálsinn.
Lausir endar
Í niðurstöðukafla dómsins segir meðal annars að engar beinar sannanir liggi fyrir um að Ntentes hafi myrt Zingara, að hinn látni gæti hvort heldur hafa verið hafa verið myrtur 28. nóvember eða sólarhring síðar, að Ntentes hafi enga áverka borið sem raktir verði til átaka við Zingara, að ekkert blóð úr hinum látna hafi greinst í fötum Ntentes, að skóför á vettvangi geti bent til aðkomu tveggja að andláti Zingara og að hann hafi verið viðriðinn fíkniefnasölu og virðist hafa átt sér einn eða fleiri óvildarmenn í tengslum við fíkniefnaviðskipti.
Ómar Örn Bjarnþórsson var verjandi Ntentes í málinu og hann segir í samtali við Vísi að niðurstaðan hafi hvorki komið honum né umbjóðanda hans á óvart. Dómurinn sé ítarlegur og vel rökstuddur og niðurstaðan rétt. Ntentes hafi nú verið leystur úr haldi en ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað sé á borði Ríkissaksóknara. Hann voni að niðurstaða héraðsdóms verði endanleg. Ríkissaksóknari hefur fjórar vikur til þess að gefa út áfrýjunarstefnu.
Þá segir hann að hann telji rannsókn lögreglu á málinu hafa verið ábótavant og að hún hefði átt að ræða við fleiri menn í stað þess að einblína á umbjóðanda hans.
„Það eru lausir endar sem ég teldi eðlilegt að yrðu skoðaðir. Það er ekki of seint.“
Skoða bótakröfu þegar niðurstaða Ríkissaksóknara liggur fyrir
Loks segir Ómar Örn að þeir umbjóðandi hans þurfi að bíða og sjá hvort Ríkissaksóknari ákveði að áfrýja málinu, áður en þeir ákveða hvort krafist verði skaðabóta vegna þess tíma sem Ntentes sat í gæsluvarðhaldi.
Hann sat í gæsluvarðhaldi í þrjá daga skömmu eftir andlát Zingara í byrjun desember en var sleppt. Degi seinna, þann 10. desember, var hann hnepptur í varðhald, sem hann sætti til gærdagsins.