Ríkisútvarpið greindi frá því í morgun að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi ákveðið að kalla eftir gögnum og taka öll samskipti fjármálaráðherra og Landsvirkjunar til skoðunar vegna uppsagnar forstjóra fyrirtækisins.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og annar varaformaður nefndarinnar, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að sagan væri ekki öll sögð í málinu og sakar ráðherrann um pólitísk afskipti.
„Það sem auðvitað liggur fyrir er að það lá fyrir minnisblað Harðar síðan í júní og svo kemur ráðherra fram þann í október þegar Guðlaugur Þór spyr hann út í afsögn Harðar að þá segir hann að sagan sé öll sögð en þá lá alveg fyrir í gögnum málsins sem við höfum fengið núna að sagan var ekkert öll sögð. Þarna voru óeðlileg pólitísk afskipti af Landsvirkjun sem er náttúrulega stranglega bannað. Þetta er eitt af okkar allra verðmætustu fyrirtækjum landsins þannig að við þurfum að halda ákveðinni armslengd þarna á milli og miðað við allavega það sem kemur fram í minnisblaði Harðar þá er vert að skoða þetta og þær athugasemdir sem hann setur þar fram,“ segir Ingveldur Anna í samtali við Vísi.
Fjármálaráðherra fagnar því að nefndin ætli að taka málið fyrir.
„Jú, ég fagna þessu mjög. Það er mjög mikilvægt að það ríki traust, ekki bara um Landsvirkjun heldur almennt um það hvernig fjármála- og efnahagsráðuneytið hagar sér sem eigandi og þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að þetta fari í ferli þar sem einfaldlega öllum spurningum er svarað.“
Að hans mati sé ekkert ósagt í málinu. Skýrar reglur séu um það hvernig ríkið eigi að haga sér sem eigandi.
„Það sem breytist um áramótin 2024, 2025 er að það fyrirkomulag sem hafði verið í samskiptum ríkisins við bankana gildir núna um öll fyrirtækin. Og það fyrirkomulag var á sínum tíma hannað til þess að tryggja að það væri armslengd á milli ríkisins sem eiganda og þessara fyrirtækja, þetta voru þá bankarnir á sínum tíma. En nákvæmlega sömu sjónarmið að mínu mati eiga að gilda um alla og lögin segja nú til um það.“
Hann vísar því algjörlega á bug að hann hafi haft pólitísk afskipti í málinu.
„Já, ég vísa því algjörlega á bug og eins og ég segi, við höfum gætt þess mjög að vera innan þessa þá stífari ramma sem gilti um bankana og núna gagnvart öllum fyrirtækjum ríkisins.“