Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.
Varaforseti Bandaríkjanna er bersýnilega að undirbúa forsetaframboð og að reyna að fjarlægja sig frá valdaelítunni í Washington að mati stjórnmálafræðings.
Vaxtarmörk Reykjavíkur, tímamörk flugvallarins í Vatnsmýri og framtíð olíuhafnarinnar í Örfirisey verða tekin til skoðunar við endurskoðun aðalskipulags. Samfylkingin styður undirbúninginn en varar við því að borgin þenjist aftur út.
Varðstjóri hjá lögreglunni á Vestfjörðum segir öryggi og heilsu lögreglumanna á Ísafirði ógnað vegna gjörsamlega óviðunandi vinnuaðstöðu. Mælirinn sé fullur.
Tíu tonna grjóthnullungur skaust í gegnum nýuppsettar hrunvarnir við Hringveginn undir Eyjafjöllum í gær. Íbúi á svæðinu segir íbúa áhyggjufulla og kallar eftir tafarlausum aðgerðum.
Í sportinu fjöllum við um Cristiano Ronaldo sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna og íslenska körfuboltann.