Allir Bónus vanilludropar innkallaðir – neytendur hvattir til að nota þá ekki

Aðföng hafa í samráði við Bónus og H-Berg ehf. innkallað Bónus vanilludropa vegna óstaðfests gæðaflokks hráefnis í vörunni. Innköllunin nær til allra lotunúmera og allra „best fyrir“-dagsetninga.
Varan hefur verið tekin úr sölu. Viðskiptavinum sem eiga dropana er ráðlagt að nota þá ekki og skila þeim í verslunina þar sem þeir voru keyptir gegn fullri endurgreiðslu.
Innköllunin nær til eftirfarandi pakkninga:
- 50 ml glass
- 500 ml brúsa
- 1 lítra brúsa
Strikamerki vörunnar eru 5694311960143, 5694311960341 og 5694311960150.
Vanilludroparnir eru framleiddir af H-Berg ehf. í Hafnarfirði og seldir í verslunum Bónuss. Aðföng biðja viðskiptavini afsökunar á þeim óþægindum sem innköllunin kann að valda.