Miðflokkurinn í sókn en Flokkur fólksins mælist án þingmanns
Miðflokkurinn bætir mestu við sig í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups en Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins. Flokkur fólksins mælist með tæplega fjögurra prósenta fylgi og næði ekki manni á þing. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar og mælist nú 47 prósent.
Miðflokkurinn er í mestri sókn stjórnmálaflokka samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var á RÚV í dag. Flokkurinn bætir við sig rúmlega tveimur prósentustigum frá síðustu mælingu og mælist nú með 17 prósenta fylgi. Fylgi annarra flokka er nánast óbreytt.
Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins með 29 prósenta fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn fylgir á eftir með 25 prósent. Viðreisn mælist með 10 prósenta fylgi.
Framsóknarflokkurinn mælist með 6 prósenta fylgi, sem myndi samkvæmt útreikningum Gallups skila flokknum fjórum þingmönnum. Vinstri græn mælast með 3,5 prósent og myndu ná einum kjördæmakjörnum þingmanni.
Flokkur fólksins, sem á sæti í ríkisstjórn, mælist hins vegar með tæplega fjögurra prósenta fylgi og næði samkvæmt könnuninni ekki manni á þing.