Flugstjórinn hefur verið nafngreindur sem Jeff Gregory. Hann var 55 ára gamall, þriggja barna faðir frá Philadelphia.
Hann og hin tvítuga Nathalia Filgueiras, aðstoðarflugmaðurinn, voru að fljúga þeim Adam Robinson, Helen Sharp og tveimur ungum börnum þeirra, Emmu (fjögurra ára) og Charlie (tveggja ára), frá Texas til Bahamaeyja þegar flugvélin brotlenti. Vinapar þeirra, þau Rachael Reed og Charmi Fehr, voru einnig um borð og barnfóstra sem hét Anita Maria Cetina.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar en skömmu áður en hún lýsti yfir neyðarástandi hafði Filgueriras sagt flugumferðarstjóra að þau hefðu lent í ókyrrð og að ísing væri að myndast á flugvélinni. Þau þyrftu að hækka flugið úr 35 þúsund fetum í 37 þúsund fet.
Stjúpfaðir Filgueiras sagði í samtali við New York Post að um tíu mínútum fyrir slysið hafi hún sent kærasta sínum skilaboð um að hún væri að fljúga í ókyrrð og að glíma við ísingu.
Þá var Gregory að fljúga flugvélinni en AP-fréttaveitan segir hann hafa haft mikla reynslu af flugi og hafa verið menntaðan flugkennara.
Upptökur af samskiptum Filgueiras við flugumferðarstjóra þegar flugvélin var að hrapa til jarðar hafa verið birtar á netinu. Þar má í bakgrunni heyra mann biðja til guðs þegar Filgueriras segir að þau muni brotlenda.
Vinir hans eru sannfærðir um að það hafi verið Gregory, sem ku hafa verið mjög trúrækinn maður.
Á upptökunni heyrðist Filgueiras segja að þau myndu brotlenda og deyja en þau væru að reyna að beygja flugvélinni. Það síðasta sem hún sagði var að tíminn væri á þrotum.
Talsmaður rannsóknarnefndar samgönguslysa vestanhafs sagði í gær að veðrið væri stór liður í rannsókninni á slysinu. Hann sagði von á bráðabirgðaskýrslu eftir um mánuð en rannsóknin myndi líklega taka meira en ár.
Haldinn verður blaðamannafundur um rannsóknina í kvöld. Hann hefst klukkan átta og er hægt að finna hann í spilaranum hér að neðan.