Þing Grænlands samþykkti í dag samning sem formaður landsstjórnarinnar og forsætisráðherra Danmerkur gerðu við Bandaríkjastjórn 22. september.
Samningurinn var gerður eftir ítrekaðar hótanir Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland. Í samningnum felst meðal annars að Bandaríkin fái að koma sér upp tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi og stækka herstöð sína í Pituffik.
Danska þingið á enn eftir að samþykkja samninginn. Búist er við að það ferli hefjist 12. nóvember og að því ljúki 19. nóvember, að því er fram kemur í frétt DR, danska ríkisútvarpsins.