Meðlimir í hverfisráði Grímseyjar og aðrir íbúar með fasta búsetu í eyjunni hafa óskað eftir því að áformum að auglýsa tvær fasteignir í eynni til sölu verði slegið á frest. Eigandi þessara eigna er Akureyrarbær en íbúarnir óttast að þær verði keyptar af aðila eða aðilum sem ætli sér að nýta þær til sumardvalar en ekki fastrar búsetu.Bréf frá þessum áhyggjufullu Grímseyingum var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Akureyrar fyrir helgi. Um er að ræða tvíbýlishús sem skiptist fasteignirnar Vallargötu 13 og 15.
Óttast að hús í Grímsey verði nýtt sem sumarbústaðir