Fyrstu kjörstöðum hefur verið lokað á austurströnd Bandaríkjanna. Von bráðar munu fyrstu tölur koma í ljós.
Kjörstaðir í síðustu fylkjunum, þ.e. í Alaska og á Hawaii, loka ekki fyrr en klukkan sex að íslenskum tíma. Það þýðir þó ekki að endanleg úrslit muni liggja fyrir snemma á morgun, það fer allt eftir því hversu mjótt verður á munum.
Í síðustu miðkosningum, árið 2022, tók til dæmis rúma viku að fá afgerandi niðurstöðu.
75% óánægðir eða reiðir
Flestir kjósendur segja efnahagsmálin sitt helsta áhyggjuefni. Rúmlega 79 þúsund manns voru spurðir hvaða málefni væri þeim mikilvægast í kosningunum í könnun á kjörstöðum. Um 39% sögðu efnahagsmál. Næst flestir nefndu stöðu lýðræðisins eða 32% og þar á eftir voru innflytjendamál en 14% nefndu þau.
Heilbrigðismál, utanríkismál og glæpir voru nefnd mun sjaldnar.
Fyrirtækið SSRS framkvæmir könnunina sem tekur bæði til þeirra sem kusu utan kjörfundar og þeirra sem kusu á kjördag, fyrir hönd samsteypu bandarískra fjölmiðla.
Samkvæmt könnuninni eru 75% kjósenda óánægðir eða reiðir vegna stöðu Bandaríkjanna.
Ólíkar reglur um talningu atkvæða
Mismunandi reglur gilda um móttöku og vinnslu kjörseðla í ólíkum ríkjum Bandaríkjanna. Talning getur þar af leiðandi gengið mishratt fyrir sig eftir ríkjum.
Þá getur líka haft áhrif hversu margir kjósa utan kjörfundar.
Í flestum ríkjum er starfsfólki kjörstjórna heimilt að taka kjörseðla úr umslögum og staðfesta kosningarétt kjósandans fyrir kjördag.
Í nærri helmingi ríkjanna er kjörstjórnum heimilt að skanna kjörseðla inn í talningarvélar fyrir kjördag, þannig að hægt sé að telja þá strax og taka þá með í niðurstöður á kosninganótt.
Í öðrum ríkjum, þar á meðal í Michigan og Wisconsin, má starfsfólk kjörstjórna ekki opna kjörseðla sem berast utan kjörfundar fyrir kjördag.
Þá taka sum ríki við atkvæðum sem greidd voru utan kjörfundar eftir kjördag, sem getur tafið endanlegar tölur.
Fréttin verður uppfærð.