„Allir umboðsmenn í heimi sem eru með „up and coming bönd“ reyna að koma sínu bandi inn þannig að við erum í stöðu til þess að velja það allra besta úr öllum heimshornum. Þannig geta allir treyst því að ef þú komst inn á Iceland Airwaves, að þá er eitthvað varið í þig,“ sagði Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu og skipuleggjandi hátíðarinnar, í samtali við Vísi um helgina.
Um þúsund bönd hefðu sóst eftir því að spila og innan við hundrað fengið græna ljósið.
Böndin sem koma fram á Airwaves eru héðan og þaðan, aðallega þaðan, en Iceland Airwaves hefur tekið saman lagalista með broti af því besta sem verður í boði. Þannig geta áhugasamir tónleikafarar byrjað að kynna sér listamennina og auðveldað sér að skipuleggja fimmtudag, föstudag og laugardag þegar valið getur verið erfitt.
Hlusta má á lagalistann hér að neðan og þannig getur hver og einn metið hverju hann er spenntastur fyrir.