Forsvarsmenn Bethesda Softworks birtu í dag myndband þar sem forstjórinn Todd Howard fór yfir fjörutíu ára sögu fyrirtækisins og gamla leiki þess. Í lokin opinberaði hann svo nafnið „Sentinel“ fyrir ES6.
Litlar viðbótarupplýsingar fylgja titlinum aðrar en tilvísun í orð mölfluguprests frá Hammerfell.
Mögulegt er að stikla fyrir leikinn verði sýnd á Game Awards-viðburðinum í desember. Ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum.
Sentinel er höfuðborg eins af konungsríkjum Alik‘r eyðimerkurinnar í Hammerfell. Það er ekki í takt við gömlu stikluna frá 2018, sem gaf til kynna að sögusvið leiksins yrði High Rock, sem er annað svæði í söguheiminum stóra. Þessi tvö svæði liggja þó hlið við hlið og gæti leikurinn átt sér stað í þeim báðum.
Nánar tiltekið eru átta ár, fjórir mánuðir og 23 dagar síðan stiklan hér að neðan var fyrst birt. Siðmenningar hafa risið og fallið á þessum tíma.