Auto á Lækjargötu stendur árlega fyrir stórum Hrekkjavökuteitum fram á nótt og halda svo kosningu um besta búninginn.
Ungstirnið Maron Birnir tróð upp á föstudag og DJ Sorry Orri þeytti skífum. Poppstjarnan Alaska tók svo vel valin lög á laugardagskvöldið og Logi Snær spilaði fram undir morgun. Sjón er sögu ríkari en hér má sjá vel valdar myndir frá helginni á Auto sem Jón Víðis og Oddur Sverrisson festu á filmu: