Repúblikanar þykja öruggir með sigur í nokkrum ríkjum og demókratar í öðrum. En það eru nokkur ríki sem demókratar þurfa að vinna til að tryggja sér fleiri sæti en repúblikanar til að ná öldungadeildinni. Nú þegar hefur Ray Cooper náð sæti fyrir demókrata fyrir Norður-Karólínu. Önnur ríki til að fylgjast með sérstaklega eru Kansas, Texas, Michigan, Maine, Alaska og Ohio. Þá verður einnig áhugavert að sjá hver niðurstaðan verður í Suður-Karólínu og Iowa. Skoðum þetta nánar.
- Kansas er lykilríki Repúblikana og þar hefur ekki demókrati tryggt sér öldungadeildarsæti síðan 1932.
- Texas hefur ekki átt fulltrúa demókrata í öldungadeildinni í rúm 30 ár. Demókratinn James Talarico – eða James Talaskrípó (James Talafrico) eins og Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar hann, þykir líklegur til að sigra repúblikanann Ken Paxton.
- Í Michigan stendur valið á milli Abdul El-Sayed fyrir demókrata og Mike Rogers fyrir Repúblikana. Það stefnir í spennandi kosningu þeirra á milli, en nú þegar 16% atkvæða hafa verið talin mælist El-Sayed með 54,6% atkvæða og Rogers með 43,8% atkvæða.
- Í Main er það repúblikaninn Susan M. Collins sem berst fyrir sæti sínu í öldungadeildinni og stendur frammi fyrir demókratanum Troy D. Jackson sem mælist með örlítið meira fylgi en Collins.
- Í Alaska stendur valið á milli repúblikanans Dan Sullivan og demókratans Mary Peltola. Munurinn milli þeirra í könnun NYT er sjö prósentustig. Peltola mælist með 50% fylgi og Sullivan 43%. Hinn óháði Dan Sullivan er ekki talinn líklegur til sigurs. Polymarket telur 70% líkur á sigri Peltola.
- Ohio telst vera rautt ríki og repúblikanar hafa verið nokkuð öruggir með fylgi sitt þar. Það er þó mjög mjótt á munum milli demókratans Sherrod Brown og Jon Husted. Þegar 68% atkvæða hafa verið talin er Brown með 48,4% atkvæða og Husted 46,9%. Sem sagt ansi mjótt á munum.
- Í Suður-Karólínu er demókratinn Annie Andrews með um 6% forskot á repúblikanann og öldungadeildarþingmanninn Darline Graham. Darline Graham hefur ekki setið lengi á þingi, en hún tók við sæti bróður síns Lindsey sem lést nýverið.
- Í Iowa er svokallað rautt ríki og þar hefur Trump fengið góða kosningu í bæði skiptin sem hann bauð sig fram til forseta. Iowa er mikið landbúnaðarríki og bændur hafa ekki farið varhluta af hækkun á áburði og landbúnaðarvörum sem gæti hafa ráðið atkvæði þeirra.
Því má bæta við fleiri frambjóðendur eru í nokkrum ríkjum en talið er upp hér að ofan. Þessi samantekt miðast við þá tvo frambjóðendur sem mælast með mesta fylgið hverju sinni.
Keisha Lance Bottoms, fyrrum borgarstjóri Atlanta-borgar, er spáð sigri í kosningunni um ríkisstjóra Georgíu. Hún kemst þá á spjöld sögunnar með sigri sínum, sem fyrsta svarta konan sem er kjörin ríkisstjóri.
Demókratar hafa tryggt sér fyrsta þingsætið á öldungadeildinni af repúblikönum í Norður-Karólínu með sigri fyrrum ríkisstjórans Roy Cooper. Þegar 67% atkvæða hafa verið talin er Cooper með 61,2% atkvæða en mótframbjóðandi hans, repúblikaninn
Michael Whatley, er með 36,9% atkvæða samkvæmt The New York Times.
Demókratar unnu síðast öldungadeildarsæti fyrir ríkið í kosningunum árið 2008 og því telst þessi sigur til nokkurra tíðinda.
Demókratanum Chris Pappas er spáð sigri í New Hampshire en hann er með 60,2% atkvæða og repúblikaninn John E. Sununu er með 38% þegar 25% atkvæða hafa verið talin.
Nú hefur kjörstöðum verið lokað í Connecticut, Alabama, Delaware, Illinois, Maine, Maryland, Massachusetts, Michigan, Missouri, New Jersey, Oklahoma, Pennsylvaníu, Rhode Island, South Dakota, Texas, Washington DC, Mississippi, Kansas og Tennessee.
Demókrötum er spáð sætum í öldungadeildinni í Delaware, Illinois, Massachusetts, Rhode Island og New Jersey, samkvæmt AFP fréttaveitunni.
Demókratanum Jon Ossoff er spáð sigri um lykilsæti Georgíu í öldungadeildinni. Hann er með 65,4% atkvæða en mótherji hans, repúblikaninn Mike Collins, er með 34,6% atkvæða þegar 29% atkvæða hafa verið talin.
Áður en fyrstu tölur berast er óhætt að benda á fyrri fréttavakt okkar í dag um þingkosningarnar en þar er eitt og annað fróðlegt að finna um þingkosningarnar.
Fyrstu kjörstöðum á austurströnd Bandaríkjanna var lokað nú fyrir skemmstu. Von bráðar munu fyrstu tölur koma í ljós.
Samkvæmt könnun eru 75% kjósenda óánægðir eða reiðir vegna stöðu landsins. Flestir kjósendur segja efnahagsmálin sitt helsta áhyggjuefni. Rúmlega 79 þúsund manns voru spurðir hvaða málefni væri þeim mikilvægast í kosningunum í könnun á kjörstöðum. Um 39% sögðu efnahagsmál. Næst flestir nefndu stöðu lýðræðisins eða 32%. Þar á eftir voru innflytjendamál en 14% nefndu þau.
Mismunandi reglur gilda um móttöku og vinnslu kjörseðla í ólíkum ríkjum Bandaríkjanna. Talning getur þar af leiðandi gengið mishratt fyrir sig eftir ríkjum.
Þá getur líka haft áhrif hversu margir kjósa utan kjörfundar.
Góða kvöldið og velkomin á fréttavakt um þingkosningarnar í Bandaríkjunum. Ég heiti Brynja Dögg Friðriksdóttir og verð á fréttavaktinni í nótt.