Þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun eru mikilvægustu kosningar í manna minnum, sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í lokaávarpi fyrir kosningar morgundagsins.
Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í þingkosningum á miðju kjörtímabili (e. midterm elections) á morgun þar sem öll sætin í fulltrúadeildinni eru undir og um þriðjungur í öldungadeildinni.
„Þetta er síðasti dagurinn fyrir kosningar á miðju kjörtímabili, mikilvægustu kosningar á miðju kjörtímabili á okkar lífstíð, að ég tel,“ sagði Trump í ræðunni. Hann eyddi þó mestum tíma í að ræða endurbætur sem hann hefur látið gera á minnisvörðum í Washington, þá sérstaklega á tjörninni við Lincoln-minnismerkið í Washington. Hann flutti ávarpið við tjörnina.
Demókratar með forskot
Demókratar eru taldir hafa forskot á Repúblikana í nær öllum þeim sjö ríkjum sem talin eru ráða því hvor flokkurinn fái meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, sem starfaði í háskólanum í Maine í Bandaríkjunum í 30 ár og er með doktorspróf í stjórnmálafræði, spáir því að ef Repúblikanar tapi báðum deildum þingsins muni Donald Trump beita sér meira í utanríkismálum en áður.