Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að í fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, um skipulagða glæpastarfsemi, útlendingamál og fjármögnun löggæslu væri „teiknuð upp býsna dökk mynd“. Hún sagði ekki rétt að ríkisstjórnin hefði gert lítið í málaflokknum og að ekki hefði meira verið gert „í áraraðir“. Orðið heiðursofbeldi kom ekki fyrir í svörum hennar, en Snorri nefndi það í fyrirspurn sinni.
Snorri hóf mál sitt á orðunum „Þótt ríkisstjórnin sé í hálfgerðum dvala heldur lífið áfram“ og taldi upp: „20 glæpahópar í skipulagðri brotastarfsemi, menn með skotvopn á almannafæri, hópar sendir hérna frá Svíþjóð sérstaklega til að fremja ofbeldisverk.“ Hann sagði jafnframt að greint hefði verið frá því í fjölmiðlum að „hér sé farið að bera á heiðursofbeldi, nokkuð sem við þekkjum hingað til aðeins úr framandi menningarheimum en ekki hér á Íslandi“. Stóra málið væri að „laga landamærin“.
Venju fremur undarlegur fyrirspurnatími að baki á Alþingi, þar sem maður furðaði sig á undanbrögðum forsætisráðherrans þegar ég spurði hana út í þá forgangsröðun stjórnvalda að skilja dómsmálaráðuneytið eftir án fjármagns til nauðsynlegrar uppbyggingar lögreglunnar. Sérstakur blaðamannafundur um nýja en alveg ófjármagnaða löggæsluáætlun í vikunni sem leið bar örvæntingu dómsmálaráðherrans ljósan vott, sem þarf að betla pening opinberlega í stað þess að hljóta áheyrn innan ríkisstjórnar.
Á sama tíma heyrum við af tugum skipulagðra glæpahópa á Íslandi, skotvopnum á almannafæri, hópum sem sendir eru frá Svíþjóð til að fremja hér ofbeldisverk. Í víðari skilningi einnig af ýmsum öðrum áhrifum hinnar misráðnu útlendingastefnu, ofbeldismálum úti í samfélaginu og inni í skólum, og nú síðast því að hér sé farið að bera á heiðursofbeldi, fyrirbæri sem við þekkjum hingað til aðeins úr framandi menningarheimum.
Forsætisráðherra byrjaði á því sem manni fannst vera kurteisleg ábending til dómsmálaráðherrans um að hún ætti helst að vera sjálf til svara um þetta frumhlaup sitt, sem mér sýnist ekki hafa verið kynnt í ríkisstjórn „Þrátt fyrir að hér séu fagráðherrar sem myndu gjarnan vilja fá meira fjármagn er það varla frétt á Íslandi eða hjá ríkisstjórn,“ sagði Kristrún eins og þessi öryggismál, vel að merkja frumskylda ríkisvaldsins, væru bara eins og hvert annað óskaverkefni einstakra ráðherra.
Einnig svaraði forsætisráðherrann því hvort hún hefði ekki áhyggjur af þessu ástandi og sagði þá, ja, að í yfirferð minni „væri teiknuð upp býsna dökk mynd.“ Dökk mynd, segir formaður Samfylkingarinnar. Eru eðlileg fyrstu viðbrögð að gera lítið úr málinu og áhyggjum almennings? Ég vona að þar sé ekki komin skýring á þessari forgangsröðun.
Að lokum reyndi forsætisráðherrann að þylja upp ýmsa plástra sem ríkisstjórnin hefur reynt að setja á ofangreind vandamál. Við í Miðflokknum lítum frekar svo á að taka þurfi á grundvallarlöggjöfinni og endurskrifa útlendingalögin frá grunni, enda liggur þar rót flestra þessara vandamála. Tillaga okkar verður lögð fram á næstunni, sem felur m.a. í sér lokun hælisleitendakerfisins í núverandi mynd. Lausnir – en ekki útúrsnúningar og vítavert áhugaleysi á þessu grundvallarmáli.
— Snorri Másson (@5norri) November 2, 2026
Grunur um heiðurstengt ofbeldi hefur vaknað í nokkrum málum sem lögreglan hefur haft til meðferðar, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu útbreitt vandamálið er eða hvort tilvikum hafi fjölgað, samkvæmt umfjöllun DV upp úr Morgunblaðinu á laugardag. Þar kemur fram að fulltrúum lögreglu, barnaverndar og skóla hafi nú í fyrsta sinn verið boðin þjálfun í áhættumati vegna slíkra mála.
Ófjármögnuð löggæsluáætlun
Snorri sagði dómsmálaráðherra hafa mætt í fjölmiðlaviðtöl í síðustu viku og „hálfpartinn“ beðið „opinberlega um meiri peninga sem fást ekki í þessum fjárlögum“, þótt hún væri með „svaka fína ófjármagnaða löggæsluáætlun“. Hann bætti við: „Peningurinn fæst ekki.“ Dómsmálaráðherra er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. RÚV fjallaði um það í síðustu viku að óvíst væri hvort fjármagn fylgdi áformum um fjölgun lögreglumanna í nýrri löggæsluáætlun.
Snorri gagnrýndi sama mál í færslu á X í gær, eins og Nútíminn greindi frá.
Snorri Másson: 230 milljónir í utanríkisráðuneytið en ekkert fé í löggæsluáætlunina
Í fyrirspurninni sagði Snorri: „Nú veit ég að áherslan er á hallalaus fjárlög sem er mikilvægt markmið þótt það virðist óraunhæft úr þessu.“ Hann spurði forsætisráðherra: „Þarf þá ekki eitthvað annað að gefa eftir en einmitt öryggi almennings?“ Hann kvaðst ekki geta trúað því að forsætisráðherra teldi slíka forgangsröðun góða, enda gæti hún sent skipulögðum glæpahópum þau skilaboð „að hér eigi ekki að gera neitt í málinu“.
Svar forsætisráðherra
Kristrún Frostadóttir svaraði:
„Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og veit reyndar að hæstv. dómsmálaráðherra væri örugglega líka til í að standa hér og svara fyrir þetta en það er ekkert mál fyrir mig að gera það líka vegna þess að hér er teiknuð upp býsna dökk mynd. Maður á ekki að gera lítið úr þeim atriðum sem hv. þingmaður fór hér yfir.“
Hún spurði því næst hvað dómsmálaráðherra hefði verið að gera í „eitt og hálft ár“ frá því að hún tók við ráðuneytinu af Sjálfstæðisflokknum og svaraði sjálf: „Hún hefur nákvæmlega verið að taka á þessu máli.“ Kristrún sagði frumvarp um skipulagða glæpastarfsemi vera „á lokametrunum“ og að dómsmálaráðherra hefði kynnt skýrslu sem væri grunnur þess. Þá hefðu verið afgreiddar breytingar á dvalarleyfismálum, erlendum brotamönnum væri vísað úr landi „í miklu, miklu meira mæli en áður“ og skóflustunga hefði verið tekin að nýju fangelsi á Stóra-Hrauni. Á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar hefði viðbótarfjármagn farið í lögregluna og Landhelgisgæsluna.
Um fjármögnunina sagði hún að „þrátt fyrir að hér séu fagráðherrar sem myndu gjarnan vilja fá meira fjármagn er það varla frétt á Íslandi eða hjá ríkisstjórn“. Hún bætti við: „Þessi þjónustuþörf er alltaf til staðar og það er sífellt verið að meta það með hvaða hætti við getum mætt henni.“
Hún lauk fyrra svari sínu á þessum orðum: „Raunar hefur ekki meira verið gert í þessum málaflokki í áraraðir og hv. þingmaður ætti að styðja ríkisstjórnina í þessari vegferð frekar en að vera að tala málaflokkinn niður.“
Seinni umferð
Í seinni ræðu sinni sagði Snorri að Miðflokkurinn hefði stutt ríkisstjórnina „í þeim smáu skrefum sem hafa verið stigin í útlendingamálum“, en menn vikju sér undan því að taka á rótum vandans. Hann vildi „loka hælisleitendakerfinu í núverandi mynd“ og spurði hvort forsætisráðherra gæti tekið undir að hætta að afgreiða hælisumsóknir hér á landi og útvista þeim til annars ríkis, „hvort sem það er til Afríku eða annarra ríkja“. Hann sagði ríkisstjórnina setja „ófjármagnaðar löggæsluáætlanir“ og spurði: „Eða eru þetta orðin tóm eins og þetta hefur sannarlega verið hingað til?“
Kristrún svaraði því til að ekki væri hægt að halda fram að málflutningur ríkisstjórnarinnar væri „orðin tóm“ og að hún hefði tekið málið „föstum tökum“. Hún sagði:
„Auðvitað vilja allir sjá meiri peninga í hinar og þessar stofnanir. Það er það sem er verið að vinna að. En þessi ríkisstjórn erfði líka þá stöðu að héðan renna 160 milljarðar kr. af vaxtakostnaði á ári hverju sem sannarlega bitnar m.a. á löggæslu í landinu. Við þurfum að loka þessu gati svo að við getum byggt frekar undir m.a. löggæsluaðgerðir og styrkt lögregluna til lengri tíma.“
Í seinna svari sínu ávarpaði forsætisráðherra ekki tillögu Snorra um að útvista hælisumsóknum.