Íris Helga Jónatansdóttir, sem ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, viðurkenndi fyrir dómi í dag að hafa ranglega sakað einn þolanda málsins um nauðgun.Þetta gerði hún með því að biðja um tíma hjá kærumóttöku lögreglu þar sem hún fyllti út skjal þar sem hún sakaði viðkomandi um grófa nauðgun og skilaði því svo inn.Gekkst Íris við þessu þegar sækjandi bar þennan ákærulið undir hana en tók fram að hún hefði strax dregið þetta til baka með því að senda tölvupóst á lögreglu. Hún hefði gert þetta í reiði þar sem hún teldi þolanda vera að „mannorðsmyrða“ sig.
Íris Helga viðurkennir að hafa logið til um nauðgun - „Hann veit ekkert hver ég er“