Trump biðlar til þjóðarinnar kvöldið fyrir kosningar
Kannanir benda til þess að demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni og eigi möguleika á sigri í öldungadeildinni. 54 milljónir hafa þegar greitt atkvæði. Óánægja með efnahagsástandið fer vaxandi og stuðningur við Donald Trump hefur aldrei mælst minni. Úrslitin gætu sett forsetanum verulegar pólitískar skorður.
Donald Trump Bandaríkjaforseti valdi Spegillaugina í Washington (Reflecting Pool) sem bakgrunn fyrir síðustu tilraun sína til að fylkja repúblikönum til liðs við sig fyrir þingkosningarnar á morgun, þriðjudag. Misheppnaðar endurbætur á þessu þekkta kennileiti hafa orðið að táknmynd fyrir óreiðuna sem einkennt hefur annað kjörtímabil hins áttræða forseta. Skoðanakannanir benda til sigurs demókrata í kosningunum.
„Þetta er síðasti dagurinn fyrir þingkosningarnar, þær mikilvægustu sem ég tel að við höfum upplifað á okkar ævi,“ sagði Trump þegar 26 mínútur voru liðnar af langri og sundurlausri ræðu hans. Þar fjallaði hann einkum um áform sín um að endurbæta minnisvarða í höfuðborg Bandaríkjanna, fremur en verðbólgu, stríðið við Íran og önnur mál sem skipta kjósendur máli.
Skoðanakannanir benda til þess að demókratar séu í góðri stöðu til að ná meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og eigi jafnframt möguleika á að ná meirihluta í öldungadeildinni. Slík breyting myndi í fyrsta sinn setja Trump …