Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður á Samstöðinni, greinir frá óþægilegri uppákomu þegar Vottar Jehóva vildu fá að komast inn á heimili hans. Ung dóttir hans var ein heima.„Mig langar að vara við Vottum Jehóva. Dóttir mín, 16 ára, lenti í því í dag í Þingholtunum að þeir hringdu dyrabjöllunni þegar hún var ein heima,“ segir Björn í færslu á samfélagsmiðlum. „Vottarnir voru vægast sagt ágengir í trúboði sínu, gerðu hvað þeir gátu til að fá að komast inn í íbúðina! Stúlkan var ein heima.“
Björn varar við ágangi Votta Jehóva – „Gerðu hvað þeir gátu til að fá að komast inn í íbúðina! Stúlkan var ein heima“