Matvöruverslanir í sjö löndum í Evrópu urðu fyrir netárásum sem höfðu áhrif á kæli- og frystiskápa í dag. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum.
Um 40 verslanir Delhaize stórmarkaðskeðjunnar í Belgíu og Lúxemborg urðu fyrir árásum sem og verslanir í Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Hollandi og Írlandi.
Fyrirtækið Sabcobel, sem rekur kælikerfi Delhaize-verslananna, segir að stillt hafi verið á afþýðingu á kæliskápunum með þeim afleiðingum að hitastig í þeim hafi hækkað.
Talið er að þetta sé sama aðferð og tölvuþrjótar notuðu á stórmarkaðskeðjur í Frakklandi í október. Þar urðu yfir 500 verslanir fyrir netárás og matvæli að andvirði milljóna evra skemmdust.
Stephan Moelans, forstjóri Sabcobel, segir atvikið hafa verið tölvuárás og að fyrirtækið hafi unnið frá því í nótt við að aftengja þær einingar sem urðu fyrir áhrifum frá netinu.
Moelans segir að síðan árásirnar hafi verið gerðar í Frakklandi í síðasta mánuði hafi fyrirtækið unnið að því að vernda kælitækin sín fyrir þessum veikleika en að ekki væri nóg að uppfæra hugbúnaðinn heldur þyrfti að gera breytingar á búnaðinum sjálfum.
Flestir stórmarkaðir í Evrópu eru nettengdir og því er hægt að sinna viðhaldi og bilanagreiningu í gegnum án þess að vera á staðnum.
„Einfaldasta lausnin er að reka kælikerfin í gegnum örugga nettengingu. Flestir viðskiptavinir okkar tóku það upp eftir netárásina í Frakklandi,“ segir Moelans.
Í netárásunum fór hitastig í sumum kæliskápum upp í 50 stig.
Bæði netöryggisstofnanir Belgíu og Svíþjóðar segjast fylgjast náið með þróun málsins. Breska netöryggismiðstöðin, NCSC, segist vinna með alþjóðlegum samstarfsaðilum að því að öðlast skilning á atvikinu. Ekki hafi verið tilkynnt um sambærileg atvik þar.
Verslun Delhaize í Flæmingjalandi í norðurhluta Belgíu, sagði við fjölmiðla á staðnum að hún hefði orðið fyrir tjóni upp á um 100 þúsund evrur, jafnvirði 14 milljóna íslenskra króna, vegna matvæla sem skemmdust.
Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á netárásunum.