Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum - Vísir

Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum - Vísir

Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum - Vísir

Bandaríkjamenn hafa um nokkurt skeið gagnrýnt Evrópu harðlega á þeim grunni að nokkur ríki heimsálfunnar hættu ekki að kaupa jarðgas af Rússum eftir innrásina í Úkraínu 2022. Á fyrra kjörtímabili Trumps gagnrýndi hann Angelu Merkel, þáverandi kanslara, sérstaklega vegna Nord Stream 2 gasleiðslunnar og sagði að hún myndi gera Þýskaland að gísl Rússlands. Árið 2019 beitti hann refsiaðgerðum vegna gasleiðslunnar.

Núna vilja ráðamenn í Bandaríkjunum græða á sölunni, samkvæmt heimildum blaðamanna Wall Street Journal.

Ríki Evrópu hafa á undanförnum árum dregið verulega úr kaupum á jarðgasi frá Rússlandi síðan innrásin í Úkraínu hófst.

Evrópa var á þessum tíma mjög háð Rússlandi þegar kemur að orku en gripið hefur verið til umfangsmikilla aðgerða til að breyta því. Um 42 til 45 prósent af orkueyðslu Evrópu fór til Rússlands en hún er nú komin í tólf prósent og stendur til að draga enn frekar úr þessum kaupum.

Þau ríki sem hafa keypt hvað mest af olíuafurðum frá Rússlandi eru Ungverjaland og Slóvakía, sem hafa haft fáa aðra kosti. Önnur ríki sem höfðu áður gert langtímasamninga við Rússa fengu einnig undanþágur.

Samkvæmt reglum Evrópusambandsins á þessum kaupum að vera alfarið hætt fyrir lok næsta árs.

Í frétt WSJ segir að leiðtogar stærstu ríkja Evrópu hafi lítinn áhuga á því að gera sig aftur háða olíu frá ríki sem þeir telja meðal helstu ógna sem steðja að ríkjum Evrópu um þessar mundir.

Eiga í miklum viðskiptaviðræðum við Rússa

Kushner er tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Witkoff er vinur hans. Þeir hafa farið víða um heim á undanförnum tveimur árum sem sérstakir erindrekar forsetans og hafa meðal annars haft það hlutverk að reyna að koma á friði í Úkraínu. Hingað til hefur það engum árangri skilað.

Rússar hafa ekkert komið til móts við þá eða látið af kröfum sínum í garð Úkraínu á undanförnum tveimur árum. Á undanförnum mánuðum hafa fregnir borist af því að tvímenningarnir hafi breytt um stefnu. Þeir eru hættir að reyna að tæla Rússa til samninga með því að heita umfangsmiklum viðskiptasamningum eftir að friður næst og eru þess í stað að reyna að eiga í viðskiptum við Rússa, án þess að þeir þurfi fyrst að binda enda á stríðið. Með þessu vilja Trump-liðar sefa meintar áhyggjur Rússa af því að þeim sé ekki alvara með viðskiptasamningum.

Sjá einnig: Í­huga að fara nýja leið og bjóða Rússum við­skipta­samninga

Einnig hafa borist fregnir af því að Bandaríkjamenn vilji veita Rússum aftur aðgang að eigum þeirra sem hafa verið frystar í Bandaríkjunum og í Evrópu. Þetta eiga þeir Kushner og Witkoff að hafa lagt til við ráðamenn í Evrópu en mestallar eignirnar sem um ræðir eru í evrópskum bönkum.

Þetta er á sama tíma og Kushner og Witkoff eru að semja um kaup viðskiptafélaga þeirra í Mið-Austurlöndum um kaup á erlendum eignum rússneska orkufyrirtækisins Lukoil. Þar á meðal eru olíuvinnslur í Austur-Evrópu.

Hættu að tala um gas þegar Úkraínumenn hættu árásum

Eftir að Kushner og Witkoff fóru til Moskvu og Kænugarðs fóru þeir að leggja til áðurnefnd jarðgaskaup Evrópu. Var markmiðið samkvæmt WSJ að vinna að því að koma á svokölluðu orkuvopnahléi.

Þegar hann var í Moskvu kallaði Witkoff Vladimír Pútín Rússlandsforseta mikinn mannvin. Það vakti víða hörð viðbrögð.

Sjá einnig: „Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“

Bandaríkjamenn hafa lagt nokkuð púður í að reyna að fá Úkraínumenn til að hætta árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Trump og fleiri hafa ranglega haldið því fram að þessar árásir hafi valdið miklum hækkunum á eldsneytismörkuðum en ekki stríð Bandaríkjanna gegn Íran.

Árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi þykja vel heppnaðar en sala á olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins og er notuð til að fjármagna stríðið gegn Úkraínu.

Vólódímír Sleneskí, forseti Úkraínu, hefur sagt að Úkraínumenn geti hætt þessum árásum en í staðinn þyrftu Rússar að hætta árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Það hafa Rússar ekki viljað gera.

Eftir að Trump ákvað upp á sitt eindæmi að lýsa yfir orkuvopnahléi og laug því að bæði Rússar og Úkraínumenn hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars, hættu Úkraínumenn árásum sínum í nokkra daga. Það gerðu Rússar ekki.

Sjá einnig: „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“

Evrópskir bakhjarlar Úkraínu höfðu í kjölfarið hvatt Selenskí til að draga úr árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi, þar til eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku.

Þrátt fyrir árásir Rússa hættu Úkraínumenn þessum árásum í hljóði um miðjan október og hættu Bandaríkjamenn þá að tala um kaup Evrópu á jarðgasi frá Rússlandi. Það breyttist svo aftur í síðustu viku þegar Úkraínumenn hófu aftur árásir á olíuvinnsluinnviði.

Það gerðu þeir eftir að Rússar felldu fjölda óbreyttra borgara í eldflauga- og drónaárásum víðs vegar um Úkraínu.

Tekjurnar færu á vörslureikning

Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, sagði við blaðamenn í morgun að eins og staðan væri núna gætu Rússar ekki byrjað að selja jarðgas aftur til Evrópu. Það væri þó hægt ef allir yrðu sammála um viðskiptin.

Eins og Bandaríkjamenn sjá þetta fyrir sér gæti Pútín samþykkt söluna í ljósi teknanna sem eru í boði og þá myndu Úkraínumenn einnig hagnast á sölunni, þar sem gasið yrði flutt með leiðslum sem liggja gegnum Úkraínu.

Tekjurnar af sölunni ættu að fara á sérstakan vörslureikning í Evrópu, sem yrði stýrt af þriðja aðila. Þannig væri hægt að tryggja að Rússar notuðu tekjurnar ekki til að fjármagna stríðið í Úkraínu.

Þá eru Bandaríkjamenn sagðir sjá fyrir sér að enduropnun Nord Stream 2 gasleiðslunnar sé mikilvægur liður í umfangsmiklum viðræðum við Rússa. Einn heimildarmaður WSJ sagði að Merkel hefði á sínum tíma gert þau mistök að semja ekki fyrst við Rússa um öryggismál og koma á öryggissamkomulagi sem Rússar væru sáttir við.

Fyrir innrásina í Úkraínu í febrúar 2022 lagði Pútín fram þá kröfu að NATO hyrfi alfarið frá ríkjum Austur-Evrópu, eða öllum þeim ríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir 1991.

#beygju #evrópa #kaupi #taka #vilja

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262957390d/taka-u-beygju-og-vilja-ad-evropa-kaupi-aftur-gas-af-russum

📰 Aðrar fréttir

„Mannlegur“ er orð ársins að mati Cambridge-orðabókarinnar
📅 18.11.2026 👁️ 1
„Mannlegur“ er orð ársins að mati Cambridge-orðabókarinnar
Enska orðið human, eða mannlegur, er orð ársins að mati Cambridge-orðabókarinnar. Að vera mannlegur felur í sér að búa yfir eiginleikum, göllum og til...
Largest British study to check social media ban's effect on youth mental health
📅 18.11.2026 👁️ 1
Largest British study to check social media ban's effect on youth mental health
Ten different research teams will look at how well teenagers are coping without social media.
Cutting EV target risks UK missing climate targets, warns adviser
📅 18.11.2026 👁️ 1
Cutting EV target risks UK missing climate targets, warns adviser
The UK could miss legally binding climate targets if EV targets are cut, an adviser warns
The EU that Burnham is eyeing up is very different to the one Britain left
📅 18.11.2026 👁️ 1
The EU that Burnham is eyeing up is very different to the one Britain left
Andy Burnham wants "steps" towards a closer EU alignment. But the bloc has changed considerably since the UK left it
Mars minnir á Trölla­skaga - Vísir
📅 18.11.2026 👁️ 1
Mars minnir á Trölla­skaga - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birtist í vísindaritinu Earth and Planetary Science Letters en greint var frá málinu í ScienceAlert í gær. Noé L...
Segja myglu í nær öllum herbergjum hótelturnsins
📅 17.11.2026 👁️ 3
Segja myglu í nær öllum herbergjum hótelturnsins
Myglu er að finna í um 90% herbergja ókláraðs hótelturns Radisson Red að Skúlagötu 26. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins. Talið er að tjónið get...
Nvidia: China fears Jensen Huang scandal could shut it out of US AI tech before Xi-Trump summit
📅 17.11.2026 👁️ 2
Nvidia: China fears Jensen Huang scandal could shut it out of US AI tech before Xi-Trump summit
China worries the scandal could ramp up pressure on the US to further restrict the sale of advanced chips.
Liggur fyrir hvernig eigi að rífa stúkuna - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Liggur fyrir hvernig eigi að rífa stúkuna - Vísir
„Það liggur fyrir að það þurfi að gera það. Það yrði ekki þess virði að fara að gera það upp,“ segir Steinþór Einarsson, sviðsstjóri menningar- og íþr...
Málið sem vakti mikla reiði tekur nýja stefnu
📅 17.11.2026 👁️ 3
Málið sem vakti mikla reiði tekur nýja stefnu
Breskur karlmaður sem varð 86 ára gamalli konu að bana þegar hann ók á hana á rafkrossara hefur fengið fangelsisdóm sinn þyngdan um eitt ár og níu mán...
'It's hard to keep going': Neets speak to BBC about struggling to get a job
📅 17.11.2026 👁️ 3
'It's hard to keep going': Neets speak to BBC about struggling to get a job
A government-backed review has proposed wide-ranging measures to help get young people into work - but what do young people think?
Thomas Markle charged over child sex material in Philippines
📅 17.11.2026 👁️ 4
Thomas Markle charged over child sex material in Philippines
Markle is being held in prison in the US on a separate charge and has previously denied all of the allegations.
Thomas Markle charged over child sex abuse material in Philippines
📅 17.11.2026 👁️ 2
Thomas Markle charged over child sex abuse material in Philippines
Markle is being held in custody in the US after one charge and has previously denied all of the allegations.
Home secretary plans to tackle 'perception of two-tier policing'
📅 17.11.2026 👁️ 1
Home secretary plans to tackle 'perception of two-tier policing'
Shabana Mahmood will announce stronger guidance on police impartiality.
Fær ekki að snúa aftur í forstjórastólinn
📅 17.11.2026 👁️ 3
Fær ekki að snúa aftur í forstjórastólinn
Jensen Huang fær ekki að taka aftur við sem forstjóri tæknifyrirtækisins Nvidia. Stjórn fyrirtækisins greindi frá ákvörðun sinni í kvöld. Fyrr í dag s...
Bandaríkjaher gerir árás á Qeshm-eyju í Hormússundi
📅 17.11.2026 👁️ 3
Bandaríkjaher gerir árás á Qeshm-eyju í Hormússundi
Bandaríkin gerðu loftárás á Qeshm-eyju í Hormússundi í dag, stuttu eftir að íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa gert árás á ratsjárstöð í Barein. ...
Tjáir sig um ólík viðbrögð parsins í rifrildi - Svona leysa þær málin
📅 17.11.2026 👁️ 3
Tjáir sig um ólík viðbrögð parsins í rifrildi - Svona leysa þær málin
Leikkonan Sarah Paulson hefur tjáð sig um hvað gerist þegar hún og sambýliskona hennar frá árinu 2015, Holland Taylor, 83 ára, eru ósammála og eiga ja...
Tugþúsundir undirskrifta safnast fyrir Russell Brand – „Réttlæti fyrir Brand“
📅 17.11.2026 👁️ 2
Tugþúsundir undirskrifta safnast fyrir Russell Brand – „Réttlæti fyrir Brand“
Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings hinum dæmda nauðgara Russell Brand. Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 25 þúsund manns skrifað undir listan...
Fyrrverandi lögreglumaður verður geldur - „Við vonum að fjölskyldurnar finni að réttlætinu hafi verið fullnægt“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Fyrrverandi lögreglumaður verður geldur - „Við vonum að fjölskyldurnar finni að réttlætinu hafi verið fullnægt“
Bandarískur fyrrverandi lögreglumaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til geldingar. Dómurinn kemur ofan á þrefaldan lífstíðar fangelsisdóm fyrir ky...
Nvidia reports bumper results as firm says it not reinstating Huang
📅 17.11.2026 👁️ 4
Nvidia reports bumper results as firm says it not reinstating Huang
Nvidia reported strong quarterly earnings on Tuesday amid the dramatic exit of ex-CEO Jensen Huang.
Nvidia reports bumper results as firm says it's not reinstating Huang
📅 17.11.2026 👁️ 3
Nvidia reports bumper results as firm says it's not reinstating Huang
Nvidia reported strong quarterly earnings on Tuesday amid the dramatic exit of ex-CEO Jensen Huang.
Nvidia reports bumper results as firm says it's not reinstating Jensen Huang
📅 17.11.2026 👁️ 1
Nvidia reports bumper results as firm says it's not reinstating Jensen Huang
The AI chip giant reported strong quarterly earnings on Tuesday after the dramatic exit of Jensen Huang.
Mis­lingar teljast ekki lengur út­dauðir vestan­hafs - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Mis­lingar teljast ekki lengur út­dauðir vestan­hafs - Vísir
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins er vitnað til gagna á vegum alþjóðaheilbrigðisstofnunar Ameríku (PAHO) þar sem kemur fram að sama tilfellið af misl...
Mis­lingar ekki lengur út­dauðir vestan­hafs - Vísir

Á­hyggjur af stór­aukinni lyfjafölsun - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Á­hyggjur af stór­aukinni lyfjafölsun - Vísir
Á síðasta ári var lagt hald á hátt í fjóra lítra af svokölluðum nýmynduðum kannabínóíðum, eða Spice eins og það er oftast kallað. Efnið svipað til kan...
Hafi gefið táningsdóttur sína í barnahjónaband - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hafi gefið táningsdóttur sína í barnahjónaband - Vísir
Þetta kemur fram í Landsréttarúrskurði sem var kveðinn upp 30. janúar 2024 en birtist á vef Landsréttar í dag.  Úrksurðað var í máli móðurinnar sama d...
„Ég fór ekki í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt“
📅 17.11.2026 👁️ 3
„Ég fór ekki í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, kveðst ekki hafa farið í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt. Þ...
Gusumeistari mætir borginni í dómsal á morgun og furðar sig á hörkunni - „Sérstakt að fara þessa leið“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Gusumeistari mætir borginni í dómsal á morgun og furðar sig á hörkunni - „Sérstakt að fara þessa leið“
Framtíð gusunnar Sækots er í uppnámi en á morgun tekur Héraðsdómur Reykjavíkur fyrir aðfarabeiðni borgarinnar sem freistar þess þar að endurheimta grá...
Telur ekki ástæðu að fara að fordæmi Dana
📅 17.11.2026 👁️ 4
Telur ekki ástæðu að fara að fordæmi Dana
Ísland er ekki á sama stað og Danmörk og nokkur önnur Evrópuríki, sem ætla að senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda í Afrí...
Sjálfstæðismaður fagnar ekki vistaskiptum Ingvars – „Hef raunar verulegar efasemdir um fagnaðarlætin hér á Facebook í gær“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Sjálfstæðismaður fagnar ekki vistaskiptum Ingvars – „Hef raunar verulegar efasemdir um fagnaðarlætin hér á Facebook í gær“
Elías Pétursson, fyrrverandi bæjarstjóri og Sjálfstæðismaður, fagnar ekki vistaskiptum þingmannsins Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn í sinn eigin flok...
Úrvinnslugjald á heyrúlluplast gæti hækkað um 92,3%
📅 17.11.2026 👁️ 4
Úrvinnslugjald á heyrúlluplast gæti hækkað um 92,3%
Úrvinnslugjald á heyrúlluplasti gæti verið að hækka um 92,3% samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í dag er úrvinnslugjaldið, það gjald sem e...
Hrekkjót systkini úr fjöllunum komu óvænt til byggða í dag
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hrekkjót systkini úr fjöllunum komu óvænt til byggða í dag
Börn á leikskólanum Austurborg í Reykjavík vöknuðu spennt í morgun enda von á Stekkjastaur og Leppatusku í heimsókn.Börnin fengu svo þann heiður að fa...
Hrekkjótt systkini úr fjöllunum komu óvænt til byggða í dag

Tinie Tempah og Víkingur Heiðar í fíling - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 4
Tinie Tempah og Víkingur Heiðar í fíling - Vísir
Bókmenntahátíðin Iceland Noir fór fyrst fram árið 2013 og hefur árlega verið viðburðarík, með fjölda viðburða tengdum bókmenntum og menningu. Meðal ge...
Hrafnhildur hjólar í Bændasamtökin og stjórnvöld – „Ráðast á þann sem kveikti ljósið“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hrafnhildur hjólar í Bændasamtökin og stjórnvöld – „Ráðast á þann sem kveikti ljósið“
Hrafnhildur Mjöll Geirsdóttir, dýraverndarsinni, kemur Einari Loga Péturssyni til varnar eftir innbrot hans hjá Stjörnugrís. Hún sakar formann Bændasa...
Burnham to set out options next month for long-term EU relationship
📅 17.11.2026 👁️ 2
Burnham to set out options next month for long-term EU relationship
The prime minister says he will set out options for the future "alongside" his 10-year economic plan.
Segja að námslánin hafi fælingarmátt
📅 17.11.2026 👁️ 4
Segja að námslánin hafi fælingarmátt
Síðustu ár hefur þeim fækkað stöðugt sem sjá námslán sem fýsilegan kost til að framfleyta sér meðan á námi stendur. Einn af hverjum átta háskólastúden...
Russian military plane crashes in Siberia killing all 19 on board
📅 17.11.2026 👁️ 4
Russian military plane crashes in Siberia killing all 19 on board
Russia's defence ministry says a technical malfunction was the likely cause of the crash in the Kemerovo region.
„Ég var frosinn í gær og í morgun“
📅 17.11.2026 👁️ 4
„Ég var frosinn í gær og í morgun“
Það er kalt á Sævarhöfðanum þar sem hjólhýsabúar halda sín heimili án rafmagns og vatns.Undanfarnar nætur hefur frostið í Reykjavík farið niður í tveg...
Mann­fall Rússa það mikið að sigur Úkraínu sé að verða ó­hjá­kvæmi­legur - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Mann­fall Rússa það mikið að sigur Úkraínu sé að verða ó­hjá­kvæmi­legur - Vísir
Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur gerir stríðinu skil í færslu samfélagsmiðlinum Facebook. Hann segir sigur Rússa smám saman vera farinn a...
Kannast ekki við að fleiri hugsi sér til hreyfings úr Viðreisn
📅 17.11.2026 👁️ 2
Kannast ekki við að fleiri hugsi sér til hreyfings úr Viðreisn
Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar segir þingflokkinn standa geysilega þétt saman og kannast ekkert við orðróm um að fleiri hugsi sér til ...
Mál tengt andláti Lúðvíks Péturssonar fellt niður
📅 17.11.2026 👁️ 2
Mál tengt andláti Lúðvíks Péturssonar fellt niður
Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál á hendur fimm einstaklingum sem höfðu réttarstöðu sakbornings þegar Lúðvík Pétursson féll ofan í sprungu í Grin...
Over 1,000 people died from lung cancer in the Canaries last year
📅 17.11.2026 👁️ 3
Over 1,000 people died from lung cancer in the Canaries last year
Lung cancer was the cause of 1,018 deaths in the Canary Islands in 2025, nine more than the previous year, according to figures published for World Lu...
American soldier arrested in UK taken into US military custody
📅 17.11.2026 👁️ 3
American soldier arrested in UK taken into US military custody
The Metropolitan Police say he has been taken into custody by the US Military over suspected national security and espionage allegations.
Government backs welfare shake-up to prevent 'lost generation'
📅 17.11.2026 👁️ 4
Government backs welfare shake-up to prevent 'lost generation'
Ex-minister Alan Milburn has set out plans to divert spending from benefits towards job support.
Mál gegn fimm vegna and­láts Lúð­víks fellt niður - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Mál gegn fimm vegna and­láts Lúð­víks fellt niður - Vísir
Mbl.is hefur eftir Júlí Karlssyni aðstoðarsaksóknara hjá embættinu að málið hafi verið fellt niður en ekki er gefið upp hvers vegna. Um var að ræða tv...
Elsti Bond-leikarinn gefur nýja gaurnum ráð
📅 17.11.2026 👁️ 3
Elsti Bond-leikarinn gefur nýja gaurnum ráð
Elsti núlifandi Bond-leikarinn George Lazenby á nokkur góð ráð til handa nýjasta meðlimi Bond-hópsins, Robert Pattinson.Nærri sex áratugir eru liðnir ...
„Ef við höfum ekki áhuga á því að þessi dæmi verði mjög mjög mörg þá þarf að stoppa þetta“
📅 17.11.2026 👁️ 3
„Ef við höfum ekki áhuga á því að þessi dæmi verði mjög mjög mörg þá þarf að stoppa þetta“
„Við erum að mörgu leyti ríkari sem samfélag vegna innflytjenda en þessi fjölgun byggði ekki á neinni stefnu. Þetta einhvern veginn bara gerðist. Stjó...
Dómarar hæfir eftir allt saman - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 4
Dómarar hæfir eftir allt saman - Vísir
Hæstiréttur fellir þar úr gildi úrskurð Landsréttar frá því í september þess efnis að allir dómarar í Héraðsdómi Reykjavíkur væru vanhæfir til að dæma...
Betting With Cryptocurrency: Advantages, Payout Times and Trade-Offs
📅 17.11.2026 👁️ 4
Betting With Cryptocurrency: Advantages, Payout Times and Trade-Offs
Funding a sportsbook account with crypto instead of a card or bank transfer changes more than the deposit screen. It changes how fast winnings actuall...
'Can I really do this?': Neets speak to BBC about struggling to get a job
📅 17.11.2026 👁️ 5