Bróðir manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík í byrjun árs 2024 vill að bæjarstjórn Grindavíkur hafi forgöngu um að lík bróður hans verði grafið upp. Leitin sem ráðist var í í síðustu viku hafi verið fjölskyldunni vonbrigði.
„Eins og þetta horfir við okkur, og vert er að taka fram að við fylgjumst með þessu í gegnum fjölmiðla að miklu leyti, þá upplifðu allavega systur mínar og börn Lúlla einhvers konar sjónarspil. Þetta tók stuttan tíma,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024.
Að tilstuðlan lögreglustjórans á Suðurnesjum var ráðist í leit í síðustu viku. Leitin stóð yfir í um sjö klukkustundir.
„Ég fæ að vita rétt upp úr átta að það eigi að hefja aðgerðir. Það eru fréttir fluttar af því laust fyrir hádegi að þá séu sigmenn að fara niður og klukkan kortér í fjögur fæ ég símtal frá lögreglustjóra, þar sem hún upplýsir mig um að aðgerðum sé lokið og ákvörðun liggi fyrir um að leita ekki meira,“ segir Elías.
Hann hafi furðað sig á hversu stuttan tíma leitin hafi tekið.
Vill að leitinni verði haldið áfram
Elías segist ekki hafa fengið nánari upplýsingar um leitina fyrr en nokkrum dögum síðar, þegar honum barst tölvupóstur frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
„Þar kemur fram að áður en farið var í holuna hafi legið fyrir ákvörðun um að ef ekkert sæist ofan á jarðvegi eða væri algjörlega sýnilegt yrði ekkert meira aðhafst,“ segir Elías og heldur áfram.
„Ég held að allir geti sett sig í þau spor okkar að það voru náttúrlega alveg gríðarleg vonbrigði. Við höfðum einhverjar væntingar um að þarna yrði farið niður og aðstæður metnar og svo myndu menn íhuga næstu skref.“
Á næstu dögum ætlar Elías að fara þess á leit við bæjarstjórn Grindavíkur að bærinn hafi forgöngu um að Lúðvík verði grafinn upp og ekki verði fyllt upp í sprunguna fyrr en það hafi verið reynt til þrautar.
„Nú veit ég ekki hvort lögreglustjórinn líti á svæðið þannig að það sé í hans forsjá lengur. Eins og ég skil þetta þá held ég að lögreglustjórinn sé búinn að afhenda bænum svæðið og þar af leiðandi sé það bæjarins að bregðast við.“
Elías ber vonir til að bæjarstjórn taki vel í erindið.
„Maður gerir sér alltaf einhverjar væntingar en þriggja ára reynsla hefur kennt mér að stilla þeim alltaf í hóf.“
Fjölskyldan geti ekki unað við að ekkert verði að gert.
„Það er ekki þannig að við séum á leið í burtu í þessu máli. Við höldum áfram á meðan stætt er og jafnvel örlítið lengur.“