Ástralinn Megan Hancocks vildi losna við nokkur aukakíló og eftir að hafa heyrt góða hluti um peptíðið retatrútíð, eða reta eins og það er gjarnan kallað, ákvað hún að slá til, jafnvel þó að lyfið sé nú aðeins fáanlegt á svörtum markaði.Það var ekki hlaupið að því að finna lyfið en það vildi þó svo til að á tíma á snyrtistofu var Hancocks boðið að kaupa reta frá kínverskum framleiðanda. Hún keypti þá bæði reta og annað peptíð sem kallast GHK-Cu, en endaði svo ekki með að nota það síðarnefnda.
Eyddi mánuði á sjúkrahúsi eftir að hún keypti retatrútíð á svörtum markaði