Ekki er búið að nafngreina farþega flugvélarinnar en fjölskylda hinnar tvítugu Nathalia Filgueiras hefur opinberað að hún var aðstoðarflugmaður um borð. Hún fékk flugmannapróf þegar hún var einungis sautján ára gömul og hefur skráð rúmlega 1.300 flugtíma.
Móðir Filgueiras sagði í samtali við New York Times að dóttir hennar hefði unnið fyrir Upper Jets, einkaþotufyrirtæki í Fort Lauderdale í Texas.
Verið var að fljúga flugvélinni frá Texas til Bahamaeyja þegar hún lækkaði flugið mjög hratt og féll nánast lóðrétt til jarðar í Palm Beach.
Sjá einnig: Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu
Engan sakaði á jörðinni, sem þykir mikil mildi.
Tom Chapman, talsmaður rannsóknarnefndar samgönguslysa í Bandaríkjunum, sagði á blaðamannafundi í dag að svo virtist sem að brak hefði rifnað af flugvélinni áður en hún brotlenti. Leita þurfi langt frá brotlendingarstaðnum eftir braki.
Þá sagði hann að flugvélin hefði á einhverjum tímapunkti verið með flugrita um borð en óljóst væri hvort svo væri þegar hún brotlenti. Verið væri að kanna það og leita hans ef hann hefði verið um borð.
Hér að neðan má sjá hvernig flugvélin féll til jarðar, samkvæmt gögnum vefsins Flightradar24.
The Learjet departed Austin at 15:37 bound for the Bahamas, climbing to a cruising altitude of 41,000 feet. At 17:35 near Naples, FL, the aircraft began a descent down to 35,000 feet. At 17:48, the aircraft briefly climbed, before entering a steep, righthand descent. https://t.co/g1RK8QkTwf
— Flightradar24 (@flightradar24) November 1, 2026
Upptaka milli flugmanns flugvélarinnar og flugumferðarstjóra hefur verið í dreifingu á netinu. Óljóst er hvort þetta sé Filgueiras eða flugstjórinn sem talar á upptökunni. Þar má heyra flugmanninn segja að flugvélin sé í 35 þúsund feta hæð og að töluverð ókyrrð sé að hrista flugvélina.
Hún sagði flugvélina hafa færst allt að sjö hundruð fet vegna ókyrrðarinnar og sagði einnig að ísing væri að myndast á flugvélinni. Mikil rigning var á svæðinu og sagðist flugmaðurinn ætla að hækka flugið um tvö þúsund fet.
Skömmu eftir að flugumferðarstjóri heimilaði það lýsti hún yfir neyðarástandi og sagði að flugvélin væri að lækka flugið um átta þúsund fet á mínútu, svo var það tíu þúsund fet á mínútu. Skömmu síðar sagði hún flugvélina vera að lækka flugið um tuttugu þúsund fet á mínútu.
„Við munum brotlenda,“ sagði hún.
Það síðasta sem heyrðist frá flugmanninum var:
„Tíminn er á þrotum.“
Hér má svo sjá hvernig verið var að fljúga flugvélinni kringum slæmt veður yfir Flórída.
ADS-B data and what we know so far about the crash of N722BD earlier today near West Palm Beach, Florida. https://t.co/qduco0TxEs https://t.co/hHMpOKznyr
— Flightradar24 (@flightradar24) November 1, 2026