Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á morgun. Öll sætin í fulltrúadeildinni eru undir og um þriðjungur í öldungadeildinni. Samkvæmt nýjustu könnunum eru Demókratar með forskot á Repúblikana í nær öllum sjö ríkjunum sem ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild þingsins.
Hin margumtalaða bláa alda virðist vera innan seilingar fyrir demókrata en er hægt að taka mark á skoðanakönnunum?
Yfirgnæfandi líkur á sigri Demókrata í fulltrúadeildinni
Þumalputtareglan um kosningar á miðju kjörtímabili, sem kallaðar eru midterms á ensku, er að flokkur sitjandi forseta komi verr út úr þeim. Flokkur forsetans tapar yfirleitt fylgi í fulltrúadeildinni, þar sem kosið er um öll sætin. Í öldungadeildinni er kosið um 35 af 100 sætum.
Samkvæmt nýjustu, og jafnfram síðustu, könnunum The New York Times og Siena-háskólans, eru Demókratar með forskot í öllum sjö lykilríkjunum sem eiga þátt í því hver ræður ríkjum í öldungadeild Bandaríkjaþings næstu tvö árin.
Yfirgnæfandi líkur eru á því að Demókratar nái völdum í fulltrúadeildinni. 218 sæti þarf að til ná meirihluta þar en kannanir sýna að Demókratar gætu fengið að minnsta kosti 222 sæti.
Staðan er hins vegar erfiðari, fyrir Demókrata, í öldungadeildinni. Þeir eru með 47 sæti meðan Repúblikanar eru með 53. Til þess að fá meirihluta þar þurfa Demókratar að halda öllum sínum sætum og ná að minnsta kosti fjórum af Repúblikönum.
Fyrir hálfu til einu ári trúðu ekki margir að Demókratar gætu náð yfirráðum í öldungadeildinni þar sem mörg af sætunum sem þeir þurfa til að vinna deildina eru höfuðvígi Repúblikana.
Dæmi má nefna ríki eins og Texas, þar sem Demókrati hefur ekki náð kjöri til öldungadeildarinnar síðan 1988, og Kansas, þar sem slíkt hefur ekki gerst síðan 1932, í 94 ár.
Samkvæmt könnununum eru frambjóðendur Demókrata með forskot í fimm ríkjum þar sem nú eru þingmenn Repúblikanaflokksins. Það er í Michigan, Kansas, Maine, Ohio og Texas. Mjótt er á munum í Alaska og nánast jafnt í Iowa. Þessi ríki eru talin algjör lykilríki til þess að ná völdum í öldungadeildinni.
Drama á lokasprettinum í Michigan
Michigan er eina ríkið af þessum sjö þar sem Demókratar reyna að verja öldungadeildarsæti sitt. Frambjóðandi flokksins, Abdul El-Sayed, mælist með 53 prósenta fylgi, ellefu prósentustiga forskot á frambjóðanda Repúblikana, Mike Rogers. sem mælist með 42 prósent.
Það skal þó tekið fram að könnunin í Michigan var gerð áður en ósætti kom upp innan Demókrataflokksins um helgina. Þá lýsti Haley Stevens, þingkona flokksins í fulltrúadeildinni, yfir stuðningi við Rogers, mótframbjóðanda El-Sayed.
Stevens tapaði fyrir El-Sayed í forkosningum um hver yrði frambjóðandi flokksins til öldungadeildarinnar.
Hún birtist óvænt með Rogers á kosningafundi á sunnudag. „Ég á ekki erindi í kosningabaráttu Abuls. Hatur endurspeglar ekki þau gildi sem íbúar Michigan standa fyrir og það er ekki það sem við viljum sjá frá frambjóðanda Demókrata um þessar mundir. Þess vegna styð ég Mike Rogers,“ sagði Stevens í myndskeiði sem hún birti á samfélagsmiðlinum X.
Margir Demókratar fordæmdu þessa ákvörðun Stevens og sérstaklega að hún hafi teki hana aðeins tveimur dögum fyrir kosningarnar. Einn Demókrati kallaði þetta „svívirðileg svik“.
It's the economy, stupid!
Óánægja með störf Donalds Trump Bandaríkjaforseta og stöðu efnahags landsins undir hans stjórn eru það sem helst dregur úr fylgi Repúblikana. Aðeins 38 prósent kjósenda voru ánægðir með störf forsetans í þessum sjö ríkjum. Það telst afar lágt hlutfall þar sem Trump hafði unnið fimm þessara ríkja með tveggja stafa forskoti fyrir aðeins tveimur árum.
Helsti styrkur Demókrata í þessari kosningabaráttu hefur verið gagnrýni þeirra á efnhagslífið og aukið traust kjósenda til flokksins í þeim málum. Efnahagurinn er það mál sem skiptir kjósendur helst máli í þessum kosningum.
Þar sannast hin fleygu orð James Carville, ráðgjafa Bills Clinton Bandaríkjaforseta: „It's the economy, stupid“. Það sem helst brennur á bandarískum kjósendum er ástand bandaríska hagkerfisins og hvernig það hefur áhrif á fjárhag þeirra.
Í hverju einasta ríkjanna sjö höfðu Demókratar forsystu í málefnum er varða framfræslukostnað. Þeir eru með níu prósentustiga forskot á Repúblikana þegar kemur að afstöðu kjósenda til framfærslukostnaðar í ríkjunum sjö.
Áhyggjur beggja vegna gangsins
Standist skoðanakannanir og haldi þessi þróun áfram ná Demókratar líklega meirihluta í öldungadeildinni.
En það er ástæða fyrir þá að hafa áhyggjur af stöðunni: Það eru enn margir óákveðnir kjósendur og meðal kjósenda sem gerðu upp hug sinn síðasta mánuðinn mældust Repúblikanar með níu prósentustiga forskot.
Það eru líka slæmar fréttir fyrir Repúblikana í nýjustu könnuninni. Í öllum sjö lykilríkjunum, nema Maine, eru frambjóðendur Demókrata vinsælli meðal kjósenda en mótframbjóðendur úr röðum Repúblikana.
Demókratar auka mest við sig í Michigan og Maine
Lítum aðeins betur á þessar nýjustu kannanir The New York Times og Siena. Demókratar hafa, síðan í könnunum í sömu ríkjum í september, aukið við fylgi sitt í sex ríkjanna og tapað fylgi í einu þeirra, Alaska.
Demókratar hafa aukið mest við fylgi sitt í Maine og Michigan síðan í September. Þetta eru þau ríki af þessum sjö sem hallast mest að Demókrötum.
Í Maine er frambjóðandi Demókrata, Troy Jackson, með sex prósentustiga forskot á Susan Collins, þingmann Repúblikana sem sækist eftir endurkjöri. Jackson er með 51 prósent fylgi en Collins 45 prósent.
Þrátt fyrir það er Jackson ekki sérstaklega vinsæll hjá kjósendum og enn óvinsælli en Collins en bilið á milli þeirra tveggja hefur minnnkað undanfarið.
Í Michigan eru einnig sviptingar. Eins og minnst var á áðan er El-Sayed með ellefu prósentustiga forskot á Rogers, frambjóðanda Repúblikana. Rogers er óvinsælli en El-Sayed, vinsældir hans hafa aukist jafnt og þétt undanfarnar vikur og mánuði.
Ohio auðveldasta leiðin að meirihluta í öldungadeildinni
Í upphafi kosningabaráttunnar leit út fyrir að Demókratar ættu mesta möguleika á sæti í öldungadeildinni í Ohio, Iowa og Alaska. Samkvæmt nýjustu könnununum virðist Ohio vera auðveldasta leið Demókrata að meirihluta í öldungadeildinni. Staðan virðist vera síður hagstæð Demókrötum í Iowa og Alaska.
Sherrod Brown, frambjóðandi Demókrata, er með forskot á Repúblikanann Jon Husted í Ohio. Brown hefur 49 prósenta fylgi á móti 44 prósentum Husted.
Ashley Hinson, frambjóðandi Repúblikana í Iowa er vinsælasti frambjóðandi flokksins í könnunum en kjósendur eru ekki sammála um hvort þeir sjái hana í jákvæðu eða neikvæðu ljósi, hlutfallið þar er jafnt, 43 prósent.
Í Iowa er fylgi frambjóðanda nánast jafn, Hinson er aðeins á eftir Turek, frambjóða Demókrata, með 47 prósent en Turek 48 prósent.
Mary Peltola er frambjóðandi Demókrata í Alaska. Hún er eini frambjóðandi flokksins sem hefur tapað fylgi frá fyrri könnunum í september. Það skal þó tekið fram að nýjustu kannanir The New York Times og Siena voru gerðar að mestu leyti áður en kom í ljós að kosningateymi Peltola fékk eftirlaunaþegan Dan J. Sullivan, til að bjóða sig fram gegn Dan S. Sullivan, öldungadeildarþingmanni Repúblikana.
Í Texas er Demókratinn James Talarico með sjö prósentustiga forskot á Repúblikanann Ken Paxton, 50 prósent fylgi gegn 43 prósentum. Paxton er með neikvæðustu ímynd allra frambjóðenda sem spurt var um í könnuninni, og það með nokkrum yfirburðum.
Kjósendum líst mun betur á Talarico en Paxton, um 49 prósent líta hann jákvæðum augum meðan aðeins 33 prósent líta Paxton jákvæðum augum. Paxton er afar umdeildur og var meðal annars sakaður um mútuþægni og brot í starfi sem ríkissaksóknari Texas af eigin flokksmönnum.
Rey Gonzales, Repúblikani sem býr í Houston í Texas, og The New York Times ræddi við, sagðist ætla að kjósa Talarico frekar en Paxton í kosningunum. Gonzales kaus Trump í forsetakosningunum 2016 og 2020 en kaus ekki 2024.
Aðspurður hvað heilli hann við Talarico var svarið einfalt: „Ekkert“.
Stríðið í Íran og tollar
Trump Bandaríkjaforseti vann Kansas með afgerandi hætti í forsetakosningunum fyrir tveimur árum. Hann hlaut rúmlega 57 prósent atkvæða en Kamala Harris 41 prósent og eins og kom fram hér ofar hefur Demókrati ekki verið kosinn í öldungadeildina í nærri öld.
Hækkandi verð á dísilolíu vegna stríðsins í Íran og ákvörðun stjórnvalda um að fella niður tolla á innfluttu nautakjöti hafa farið öfugt ofan íbúa ríkisins, sérstaklega bændur.
Adam Hamilton, frambjóðandi Demókrata, er með fimm prósentustiga forskot á Roger Marshal öldungadeildaþingmann Repúblikana. Hamilton hefur stuðning um 13 prósent Repúblikana.
Þar á meðal James Gerety, sem sagði í viðtali við The New York Times, að Hamilton væri einlægari en Marshall. „Ég hafði efasemdir fyrst um sinn þar sem Hamilton er prestur.“
Hamilton er prestur í stærstu kirkju ríkisins. Gerety segir að sér finnist óþægilegt þegar trúarbrögð og stjórnmál blandist saman. „En Hamilton er að reyna að lækka verð, koma okkur út úr þessu stríði við Íran og draga úr verðbólgu.“
Demókratar svara frekar könnunum en Repúblikanar
Það er rétt að minnast á að skoðanakannanir síðustu ára hafa ekki alltaf sýnt rétta mynd, jafnvel þótt þær séu gerðar rétt fyrir kosningar.Gott dæmi um það er gengi Trumps forseta, bæði í forsetakosningunum 2016 og 2024. Í báðum kosningunum stóð hann sig betur en spáð hafði verið.
Það er því ekki þar með sagt að Demókratar séu öruggir með sigur í báðum deildum þingsins eða að kannanir endurspegli hug kjósenda.
Í umfjöllun The New York Times kemur fram að Demókratar hafi svarað könnunum í meiri mæli en Repúblikanar. Í þessum lokakönnunum sem fjallað hefur verið um hér voru hvítir Demókratar á kjörskrá um 30 prósent líklegri til að svara skoðanakönnunum en hvítir Repúblikanar. Það er aðeins hærra hlutfall en í lokakönnunum fyrir kosningarnar 2020.
Kannanir annarra fjölmiðla hafa einnig sýnt aðra mynd en teiknast upp hér. Í könnun The Washington Post var Hamilton, Demókratinn í Kansas, með tíu prósentustiga forskot en fyrirtækið sem framkvæmdi könnunina fyrir fjölmiðilinn sagðist ekki treysta niðurstöðunum.
Þar voru Demókratar einnig duglegri við að taka þátt í könnuninni en Repúblikanar.
Þessi viðvarandi skekkja, þegar ákveðnir hópar svara síður könnunum en aðrir, eykur hættu á kerfisbundnum villum í skoðanakönnunum, líkt og sást 2016 og 2020.
Það þýðir þó ekki að slík skekkja leiði óhjákvæmilega til rangrar niðurstöðu. Í umfjölluninni kemur fram að lokaskoðanakannanir 2022 hafi verið mjög nálægt niðurstöðum kosninganna.
Sama var uppi á teningnum 2018. Þá voru kannanir The New York Times nákvæmar þrátt fyrir að svarhlutfall demókrata hafi verið mun hærra en svarhlutfall Repúblikana.
Tvennt getur útskýrt af hverju kannanirnar gefa rétta mynd þrátt fyrir að stuðningsmenn Trumps séu ólíklegri til að svara þeim.
Fyrst er að kosningaþátttaka. Margt bendir til þess að stuðningsmenn Trumps séu ólíklegri til að kjósa í kosningum á miðju kjörtímabili. Þetta getur einnig útskýrt af hverju kannanir sýna betri mynd af niðurstöðum kosninga á miðju kjörtímabili en þegar forsetakosningar eru líka.
Hitt er vigtun atkvæða. Með því að láta atkvæði Repúblikana vega meira gefur það skoðanakönnunarfyrirtækjum tækifæri til að sýna réttari mynd af stöðunni.
Fyrir kosningarnar í ár tóku The New York Times og Siena-háskólinn upp nýja tækni við að vigta atkvæði.
Hvort það verði til þess að kannanir séu nákvæmar eða missi marks kemur í ljós annað kvöld þegar fyrstu atkvæði úr kosningunum berast. Þá skýrist það hvort kjósendur hrindi af stað blárri öldu eða hvort rauði veggurinn haldi sér.