Íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans eru á meðal þriggja manna sem eru í haldi lögreglu vegna andláts í Breiðholti í nótt, samkvæmt heimildum RÚV. Heimildir fréttastofunnar herma að sonurinn sé talinn hafa beitt hnífnum á tvo menn eftir átök þeirra á milli.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki gefið upp hverjir eru í haldi. Í tilkynningu lögreglunnar fyrir hádegi kom fram að karlmaður á fertugsaldri væri látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt, eins og Nútíminn greindi frá fyrr í dag. Tveir menn fundust með alvarlega áverka, að talið er eftir hnífsstungur. Annar var úrskurðaður látinn skömmu eftir komu á slysadeild en hinn liggur á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt. Þrír menn voru handteknir fljótlega annars staðar í hverfinu. Þeir eru allir íslenskir, eins og mennirnir tveir sem urðu fyrir árásinni, og rannsóknin er á frumstigi.
Faðirinn tæplega sextugur
RÚV hefur eftir heimildum sínum að feðgarnir séu báðir með áverka, en mismikla. Faðirinn er tæplega sextugur og ekki liggur fyrir hver aðkoma hans var. Fréttastofan hefur ekki upplýsingar um hver þriðji maðurinn í haldi er. Samkvæmt mbl.is verða mennirnir þrír yfirheyrðir í dag.
Heimildum ber ekki saman um hvort vopnið sé fundið
Heimildir mbl.is herma að lögregla hafi skömmu eftir klukkan tvö farið inn í fjölbýlishús í Hólunum, skammt frá vettvangi, til að sækja hníf. Í frétt RÚV segir hins vegar, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, að hnífurinn sé ófundinn. Heimildum miðlanna ber því ekki saman.
Blóm og kerti á horni Hraunbergs og Austurbergs
Árásin var framin utandyra á horni Hraunbergs og Austurbergs, samkvæmt RÚV og mbl.is, og þar hefur blómum og kertum verið komið fyrir. RÚV segir að til skoðunar sé hvort upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu séu til af árásinni. Samkvæmt mbl.is varð einnig vart við átök fyrr um kvöldið, skammt frá, á milli Hólabrekkuskóla og Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Lögreglan hefur ekki gefið út frekari upplýsingar um málið.