Landeigendum í Stóra-Botni í Hvalfjarðarsveit hugnast ekki áform eins landeiganda í Litla-Botni sem vill byggja stórt hótel og baðlón. Nágrannar hans segja hann ætla að nýta landgæði aðliggjandi jarða til að byggja upp ferðaþjónustu.
„Okkur hugnast ekki að stórfelld áform framkvæmdaraðilans um afþreyingarmiðstöð í Botnsdal, á sinni landspildu sem telur um það bil 12 hektara, að þeir séu að nýta sér landgæði okkar sem við höfum staðið vörð um síðustu áratugi og verndað,“ segir Hákon Zimsen, fulltrúi landeigenda Stóra-Botns.
Landsvæði Stóra-Botns telur sex þúsund hektara og á því er meðal annars náttúruperlan Glymur. Þar er ekki rukkað fyrir bílastæði eða aðra þjónustu.
„Þannig það skýtur skökku við að það sé þarna einhver utanaðkomandi aðili sem ætli að nýta sér svæði okkar, land okkar, í sína þágu til að sinna ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir Hákon.
„Ef maður skoðar kynningarefni þessa framkvæmdaraðila þá má sjá mjög glöggt og eiginlega augljóst að þessi starfsemi sem hann er að kynna nær langt út fyrir hans landsvæði.“
Lífshættulegar aðstæður á veturna
Hákon segir það einnig varhugavert að byggja þarna upp ferðaþjónustu allt árið sem skapi væntingar ferðamanna um að náttúruperlurnar þar séu aðgengilegar árið um kring.
„Við vitum það sem þekkjum til í dalnum að á veturna verða aðstæður við Glym og Glymsgljúfur stórhættulegar og jafnvel lífshættulegar,“ segir Hákon og vísar til banaslyss sem varð í mars fyrir þremur árum þegar kona féll 200 metra ofan í gilið.
Áformin um hótelið voru fyrst kynnt fyrir tveimur árum og Hvalfjarðarsveit samþykkti breytingu á aðalskipulagi. Nú hefur félagið Iceland Nature Connection sent tilkynningu til Skipulagsstofnunar til að fá úr því skorið hvort framkvæmdin þurfi að fara í umhverfismat. Hákon telur ekki að áformin verði að veruleika.
Ekki almannahagsmunir að reisa hótel
Botnsdalur er skráður á C-hluta náttúruminjaskrár, sem þýðir að samkvæmt lögum á að forðast að raska svæðinu nema almannahagsmunir krefjist þess og annarra kosta hafi verið leitað.
„Ég held að enginn dómstóll eða úrskurðarnefnd mundi finna það út að einkahagsmunir að því að reka hótel geti falið í sér almannahagsmuni í hefðbundnum skilningi,“ segir Hákon.
Landeigendurnir í Stóra-Botni bíða breytinga á deiliskipulagi eða framkvæmdaleyfis til þess að geta kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.