Þrír eru í haldi lögreglu vegna málsins en þeir eru allir íslenskir líkt og maðurinn sem lést en hann var á fertugsaldri. Þá er annar á sjúkrahúsi alvarlega slasaður en ástand hans var sagt stöðugt í tilkynningu lögreglu um málið fyrir hádegi. Í frétt RÚV segir að tveir mannanna sem eru í haldi séu feðgar.
Í samtali við E. Agnesi Eide Kristínardóttur, yfirlögregluþjón á rannsóknarsviði lögreglu, segir hún að ekki sé vitað meira um atburðarásina en það sem greint var frá í tilkynningu lögreglu í dag. Til átaka hafi komið milli mannanna og voru þrír sárir eftir.
E. Agnes segist ekki geta staðfest hvort árásarvopnið sé fundið líkt og fram hafi komið í frétt mbl.is né hvort málið sé rannsakað sem manndráp í lagalegum skilningi.
„Við erum á þeim stað að það sé einn látinn eftir hnífsstungu og það er bara spurning með hvaða hætti það gerist.“
Eftir því sem lögregla komist næst séu einhver tengsl á milli gerenda og fórnarlambsins.