Lögreglan á Norðurlandi hefur sent frá sér tilkynningu eftir að þeim barst ábending um að aðskotahlutir hefðu fundist í sælgæti sem var dreift í gærkvöldi vegna hrekkjavökunnar.Nálum hafði verið stungið í nokkur Milky Way og Þrista-súkkulaðistykki en lögreglan biður foreldra um að yfirfara sælgæti sem börn þeirra fengu í gærkvöldi og gæta varúðar.
Lögreglan varar foreldra við – Nálar fundust í hrekkjavökunammi á Akureyri